Keane kýldi Heinze kaldan eftir tapleik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. júní 2017 17:30 Keane og Heinze, ásamt Paul Scholes, sækja að Juan Pablo Ángel, leikmanni Aston Villa. vísir/getty
Gabriel Heinze hefur greint frá því að Roy Keane hafi eitt sinn kýlt hann kaldan eftir tapleik hjá Manchester United. Heinze og Keane léku saman hjá United í rúmt ár. Á þeim tíma var gengi United ekki upp á marga fiska og eftir einn tapleik lenti þeim Heinze og Keane saman. „Við töpuðum leik og ég fór fyrstur inn í búningsklefann, á undan Keane. Ég vildi fara fyrstur inn og vildi ekki tala við nokkurn mann þar sem við töpuðum,“ sagði Heinze í samtali við argentínska sjónvarpsstöð. „Ég skildi ekki ensku, bara blótsyrðin. Ég heyrði nafnið mitt og Keane blóta mér í sand og ösku. Ég var ekki tilbúinn að taka því og sagði honum að fara til fjandans. Ég man ekki hvað gerðist næst,“ sagði Heinze og játti því að Keane hefði kýlt hann kaldan. Heinze var valinn leikmaður ársins á sínu fyrsta tímabili hjá United en meiddist svo illa og spilaði nær ekkert tímabilið á eftir. Eftir tímabilið 2006-07 óskaði Heinze eftir sölu til Liverpool. Honum varð ekki að ósk sinni og var þess í stað seldur til Real Madrid. Argentínumaðurinn lagði skóna á hilluna 2014.
Enski boltinn Mest lesið Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Enski boltinn Ekki léttvæg ákvörðun að hætta við bardagann Sport Ógnaði lögreglu með öxi stuttu frá stuðningsmannasvæði Hollendinga Fótbolti Holland lenti undir en varamaðurinn Wout Weghorst kom til bjargar Fótbolti Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Fótbolti Ronaldinho hættur að horfa á Brasilíu Fótbolti Neituðu launahækkun til að tryggja kvennalandsliðinu sömu laun Fótbolti Utan vallar: Tuttugu ár frá besta EM allra tíma Fótbolti Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Segir England ekki eiga möguleika með Trent á miðjunni Fótbolti Fleiri fréttir Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Ratcliffe ræðst í fimmtíu milljóna punda endurbætur á Carrington æfingasvæðinu Lallana snýr aftur til Southampton Everton vill fá 80 milljónir punda fyrir Branthwaite Tilkynntu framlengingu Kerr með dramatísku myndbandi Myndi vilja tala við Rashford og Greenwood en selja Maguire Einn af styrktaraðilum Newcastle sagður misþyrma starfsfólki Ten Hag heldur starfi sínu hjá Manchester United Hættur að spá fyrir um þjálfaramál Man United Meðvitaður um stöðu sína hjá Man Utd en vill ólmur vera áfram Reynir aftur að fá Bale til Wrexham: „Hann má spila golf hvenær sem er“ Fyrrum fyrirliði Liverpool liggur þungt haldinn á spítala Sonur Dannys Mills vann silfur á EM í frjálsum Van Gaal hrósar Liverpool fyrir að ráða Slot Shaw skýtur á Ten Hag og læknateymi United: „Ég hefði aldrei átt að spila“ Stjórnarformaður Liverpool staðráðinn í að spila leiki utan Englands Chelsea vann kapphlaupið um Adarabioyo Maðurinn sem skallaði Roy Keane sakfelldur fyrir líkamsárás Öll liðin nema eitt vildu halda VAR í ensku úrvalsdeildinni Leikmannasamtök ensku úrvalsdeildarinnar beita sér gegn eyðsluþaki Arteta vill fá leikmann sem skoraði gegn Íslandi Ætla að banna starfsfólki United að borða með leikmönnunum Sádagullið heillar De Bruyne: „Þú ert að tala um ótrúlegar upphæðir“ City fer í mál við ensku úrvalsdeildina: „Ógnarstjórn meirihlutans“ Helsti styrktaraðili Liverpool sakaður um tengsl við hryðjuverkasamtök Segir enska knattspyrnusambandið vilja dæma Paquetá í lífstíðarbann Steve Bruce orðinn þreyttur á atvinnuleysinu: „Leicester, þið vitið hvar þið finnið mig“ United og Liverpool berjast um miðvörð Sporting Hareide yngri orðinn yfirmaður íþróttamála hjá ensku C-deildarliði Sjá meira