Kvika staðfestir ráðningu Ármanns Þorvaldssonar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. maí 2017 09:18 Ármann Þorvaldsson starfaði áður sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Virðingar.
Kvika banki hf. hefur sent frá sér tilkynningu þar sem frétt Vísis frá því fyrir viku um ráðningu Ármanns Þorvaldssonar sem forstjóra bankans er staðfest. Þá kemur jafnframt fram að Marinó Örn Tryggvason verði aðstoðarforstjóri bankans. Í tilkynningu Kviku kemur fram að Ármann hafi starfað hjá Virðingu frá árinu 2015, síðast sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar. Því starfi sinnti hann einnig hjá Kaupþingi frá árinu 1997 til 2005 þegar hann varð framkvæmdastjóri Kaupþings Singer & Friedlander í Bretlandi. Hann lét af því starfi árið 2008 og áður en hann hóf störf hjá Virðingu starfaði hann sem framkvæmdastjóri hjá Fasteignafélaginu Ortus Secured Finance í London. Ármann er með MBA-gráðu frá Boston University og BA-gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Marinó hefur starfað hjá eignastýringu Arion banka og forvera bankans, Kauþingi, frá árinu 2002, en hann hefur verið aðstoðarframkvæmdastjóri eignastýringar frá árinu 2014. Marinó er með BSc í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Ármann tekur til starfa hjá Kviku 15. júní næstkomandi og Marinó 1. ágúst. Magnús Ingi Einarsson framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Kviku verður staðgengill forstjóra þar til Ármann kemur til starfa.
Tengdar fréttir Ármann Þorvaldsson hættur í Virðingu og verður nýr forstjóri Kviku banka Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Kaupþings Singer & Friedlander í Bretlandi, mun taka við Sigurði Atla Jónssyni sem forstjóri Kviku fjárfestingabanka, samkvæmt heimildum Vísis. Greint var frá því fyrr í dag að Sigurður Atli hefði tilkynnt stjórn bankans að hann hefði ákveðið að láta af störfum. 27. apríl 2017 18:23 Mest lesið Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Grunur um listeríu í vinsælum ostum Neytendur Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Almannatenglar stofna fjölmiðil Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Sjá meira
Ármann Þorvaldsson hættur í Virðingu og verður nýr forstjóri Kviku banka Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Kaupþings Singer & Friedlander í Bretlandi, mun taka við Sigurði Atla Jónssyni sem forstjóri Kviku fjárfestingabanka, samkvæmt heimildum Vísis. Greint var frá því fyrr í dag að Sigurður Atli hefði tilkynnt stjórn bankans að hann hefði ákveðið að láta af störfum. 27. apríl 2017 18:23