Nýir Rio og Picanto frumsýndir Finnur Thorlacius skrifar 4. maí 2017 09:44 Nýr Kia Rio er einn sparneytnasti bíll í heimi og eyðir aðeins frá 3,8 lítrum á hundraðið.
Bílaumboðið Askja mun frumsýna nýja Kia Rio og Kia Picanto laugardaginn 6. maí kl. 11-17. Kia Rio er vinsælasti bíll sem Kia hefur framleitt frá upphafi. Ný kynslóð bílsins er mikið breytt frá forveranum bæði hvað varðar útlit og búnað. Straumlínulagaðar línur og kraftaleg umgjörð gefa bílnum fallegt heildaryfirbragð. Aksturseiginleikarnir eru sportlegir og skemmtilegir. Nýi bíllinn er vel búinn snjöllum tækninýjungum. Meðal staðalbúnaðar í bílnum má nefna Bluetooth, bakkmyndavél og bakkskynjara, hita í stýri og sætum og 5 tommu litaskjá í mælaborði. Nýr Kia Rio er einn sparneytnasti bíll í heimi og eyðir aðeins frá 3,8 lítrum á hundraðið. Bíllinn er í boði með hinu nýja og háþróaða akstursstoðkerfi Kia Drive Wise sem gerir aksturinn öruggari og ánægjulegri. Þá er bíllinn í boði með akreinavara og sjálfvirkri neyðarhemlun ásamt ýmsum öðrum búnaði. Ný kynslóð Kia Picanto er ríkulega búin staðalbúnaði og setur öryggið í fyrsta sætið. Picanto er fallega hannaður og með sportlegri ásýnd en forverinn. Snjöll hönnun hans og lítil fyrirferð gerir hann fullkominn í borgarumferðinni. Nýr Picanto er lipur og þægilegur í akstri og rúmbetri að innan en áður og státar af stærsta skotti í sínum stærðarflokki eða 250 lítrum. Meðal staðalbúnaðar má nefna Bluetooth, hita í stýri og sætum, álfelgum og loftkælingu. Eyðslan í Picanto er frá 4,2 lítrum á hundraðið. ,,Við erum mjög spennt að frumsýna þessa tvo nýju og glæsilegu bíla sem hafa verið mjög vinsælir hér á landi sem og annars staðar í heiminum. Rio og Picanto eru nettir en stórskemmtilegir bílar sem hafa unnið hug og hjörtu eigenda sinna og ég er ekki í vafa um að nýju kynslóðirnar munu halda vinsældum þeirra áfram á lofti," segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Bílaumboðinu Öskju. Kia Rio og Kia Picanto eru báðir með 7 ára ábyrgð Kia sem er lengsta ábyrgð sem bílaframleiðandi býður upp á í heiminum. Bílarnir verða einnig sýndir hjá umboðsmönnum um allt land á laugardaginn.Kia Picanto státar af stærsta skotti í sínum stærðarflokki eða 250 lítrum.
Mest lesið Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Friðarsamkomulag verði undirritað á morgun Erlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Límdu efnin á fætur sína Innlent Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent