Saumar á sig sjálf Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 4. maí 2017 11:30 Blússan sem Sædís er í er frá Zara, buxurnar Topshop, skórnir Nike, sokkarnir Asos og úrið er frá MK.MYND/ERNIR
Sædís Ýr stundar nám við Menntaskólann við Sund og vonast til að útskrifast þaðan sem stúdent í vor. Hún vinnur með skólanum í Ísbúð Huppu í Álfheimum. Fatahönnun er hennar aðaláhugamál og nýlega tók hún upp á því að sauma fög á sig.Spáir þú mikið í tísku? „Ég hef alltaf haft gríðarlegan áhuga á fötum og tísku síðan ég man eftir mér. Tíska er miklu meira en bara eitthvert trend fyrir mér. Tískan gefur fötunum sögu og getur jafnvel komið mikilvægum skilaboðum á framfæri. Hver og einn hefur sinn stíl og ég elska að sjá hvernig fólk túlkar tísku á sinn hátt.“Hvernig myndir þú lýsa þínum stíl? „Ég elska liti og munstur og ég á mér engan svokallaðan þægindaramma þegar kemur að fatavali. „Vintage“ föt eru í miklu uppáhaldi, þau eiga oft sína eigin sögu og eru svo miklu meira en bara flík oft á tíðum. Rúskinn, kögur, flauel og pallíettur eru í miklu uppáhaldi.“Sædís saumaði buxurnar sjálf. Pelsinn, sem er í miklu uppáhaldi, er frá mömmu hennar, peysan er frá Adidas, skórnir Nike og beltið frá Asos. MYND/ERNIRHvar kaupir þú fötin þín? „Ég kaupi mikið af mínum fatnaði í Kolaportinu og á öðrum „second hand“ mörkuðum og finnst sjálfbærni skipta miklu máli. Ég sel líka oft fötin mín í Kolaportinu og á fatasölum á Facebook. Uppáhaldsfataverslanir mínar á Íslandi eru einna helst Yeoman, Húrra Reykjavík, Topshop og Zara. Þegar ég panta föt á netinu panta ég aðallega af Asos og vanda merkjavalið vel en þar er mikið úrval af merkjum og hröð sending. Þegar ég er erlendis þá er auðvitað algjört möst að koma við í H&M eins og allir alvöru Íslendingar.“Eyðir þú miklu í föt? „Já, vandræðalega miklu. Mér finnst ekkert skemmtilegra en að kaupa mér flott fataefni og flottar flíkur. Ég fæ oft þá spurningu hvort ég hafi reiknað veltuhraða flíkanna minna en ég get verið ansi fljót að umturna fataskápnum.“Hver er uppáhaldsflíkin þín? „Örugglega pelsinn minn en mamma mín átti hann og nýju Miista-skórnir mínir sem ég fékk í Yeoman um daginn.“Áttu þér uppáhaldshönnuð? „Ég á mér marga uppáhaldshönnuði en ef ég myndi fá að velja mér flík frá hvaða fatahönnuði sem er myndi ég velja Alexander McQueen. Öll fötin hans eru einstök og hafa mikinn karakter. Nýja skólínan hans er t.d. er geggjuð.“ Sædís er í kjól og buxum sem hún saumaði sjálf. Keðjan er frá Asos og skórnir frá Miista. MYND/ERNIRHver er helsti veikleiki þinn þegar kemur að tísku og útliti? „Skór og jakkar.“Notar þú fylgihluti? „Ég er mikið fyrir fallegar, litríkar töskur og áberandi belti. Ég hef aldrei verið mikið fyrir fíngerða skartgripi eins og eyrnalokka og sæt men. Það er mögulega vegna þess að það er svo smágert og mér tekst oftast nær að týna þeim.“Áttu þér tískufyrirmynd? „Svala Björgvins og mamma mín. Svala er einstök og er með einn speisaðasta fatastíl sem ég veit um. Hún er ekki hrædd við að taka áhættu í fatavali. Mamma var aftur á móti algjör hippi og var mikið í þægilegum en mjög töff fötum. Ég man aðallega eftir henni í stórum munstruðum mussum og útvíðum gallabuxum. Svo átti hún líka margar flottar gallaskyrtur og þá man ég sérstaklega eftir einni sem var „oversized“ úr Levi’s.“
Mest lesið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist „Þetta snýst um líf og dauða“ Bíó og sjónvarp „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið Edda með tárin í augunum Lífið Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu Lífið samstarf Sól sló í gegn á tískuviku í London Tíska og hönnun Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Lífið Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Gagnrýni Fleiri fréttir Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Sjá meira