Haldlögðu 10 þúsund tonn af ólöglegum matvælum og 26,4 milljónir lítra af ólöglegum drykkjum Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 4. maí 2017 13:51 Fyrir hönd Íslands tóku íslenska tollgæslan og Matvælastofnun þátt í aðgerðinni sem var gerð á vegum Europol og Interpol. Vísir/Anton
Tæplega 10 þúsund tonn af ólöglegum matvælum, rúmar 26.4 milljónir lítra af ólöglegum drykkjarvörum og 13 milljónir eininga af annarri ólöglegri framleiðslu voru gerð upptæk í viðamikilli alþjóðlegri aðgerð undir heitinu Opson VI, sem lauk nýverið. Áætlað andvirði varningsins nam 230 milljónum evra. Framleiðslan var gerð upptæk vegna mögulegrar hættu á að hún væri skaðleg heilsu almennings og var hún mjög fjölbreytt. Lagt var hald á allt frá áfengi, sódavatni, kryddteningum, sjávarréttum og ólívuolíu til lúxusvarnings eins og til dæmis kavíar. Alls tók 61 land þátt í aðgerðinni. Hún hefur verið framkvæmd sex sinnum með vaxandi fjölda þátttakenda. Fyrir hönd Íslands tóku íslenska tollgæslan og Matvælastofnun þátt í Opson VI sem var gerð á vegum Europol og Interpol. Við aðgerðina nutu tollgæslan og MAST liðsinnis embættis ríkislögreglustjóra og tengslaskrifstofu íslands hjá Interpol. Ákveðið var að í þetta skipti skyldu skoðaðar einkasendingar með fæðubótarefnum og þá sérstaklega frá netverslunum í Bandaríkjunum. Sendingar voru stöðvaðar til að athuga hvort þær innihéldu ólögleg efni. Til dæmis fundust í þeim glúkósamín og melatónín, sem eru skilgreind sem lyf hérlendis. Einnig fundust svokölluð psychostimulants og nootropics, örvandi lyf og lyf sem efla heilastarfsemina en eru ekki leyfð hér. „Samkvæmt Europol og Interpol staðfesti aðgerðin að glæpamenn svífast einskis þegar kemur að matvælasvikum og engin tegund matvæla eða drykkja er undanskilin. Mannslíf eru einskis virði ef hagnaðarvon er fyrir hendi,“ segir í tilkynningu frá tollgæslunni. „Sem fyrr er markmið Opson aðgerðanna að vernda heilsu og öryggi almennings gegn ólöglegum matvælum og drykkjarvöru og jafnframt að stöðva slíka framleiðslu. Fóru allmargar handtökur fram í tengslum við aðgerðina.“
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira