Staðlaráð harmar framgöngu jafnréttisráðherra Jakob Bjarnar skrifar 8. maí 2017 14:19 Svo virðist sem fram hafi verið farið af meira kappi en forsjá í jafnlaunavottunarmálinu, ef marka má umsögn Guðrúnar Rögnvaldardóttur. „
Staðlaráð telur þó ekki rétt að skylda fyrirtæki og stofnanir til að innleiða staðalinn,“ segir í umsögn Staðlaráðs Íslands um frumvarp Þorsteins Víglundssonar jafnréttisráðherra um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt karla, eins og það heitir en gengur jafnan undir nafninu frumvarp um jafnlaunavottun. Staðlaráð telur vænlegra til árangurs að beita jákvæðri hvatningu frekar en þvingunum. Staðlar eru almennt ætlaðir til valfrjálsrar notkunar, en undir álitið skrifar Guðrún Rögnvaldardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs Íslands. Þá kemur fram í umsögninni fordæming á því hvernig þeir sem að frumvarpinu standa umgengust þá staðla sem frumvarpið grundvallast á – staðla sem Staðlaráð þó samdi og gerði. „í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu er sagt frá því samráði sem velferðarráðuneytið hafði við hagsmunaaðila við samningu frumvarpsins. Þar er ekkert minnst á Staðlaráð íslands, sem þó er útgefandi staðalsins ÍST 85:2012 og eigandi höfundar- og nýtingarréttar að honum. Rétt er að fram komi að velferðarráðuneytið hafði aldrei samband við Staðlaráð til að fá ábendingar, ráðleggingar eða upplýsingar varðandi þá fyrirætlun ráðuneytisins að gera notkun staðalsins skyldubundna fyrir öll fyrirtæki og stofnanir í landinu með 25 eða fleiri starfsmenn. Staðlaráð telur þessa framgöngu með ólíkindum og harmar slíkt samráðsleysi.“
Mest lesið Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Erlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Fleiri fréttir Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Sjá meira