Mikill munur á oddaleikjareynslu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2017 12:45 Kristrún Sigurjónsdóttir hefur spilað oddaleik í sjö seríum í úrslitakeppninni í röð. vísir/andri marinó
Keflavík og Skallagrímur spila í kvöld hreinan úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Sigurvegarinn í kvöld mætir Íslandsmeisturum þriggja síðustu ára í Snæfelli í lokaúrslitunum sem hefjast á mánudag. Það er mikill munur á reynslu leikmanna liðanna af oddaleikjum í úrslitakeppni. Tveir leikmenn Skallagríms, þær Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og Kristrún Sigurjónsdóttir, munu setja nýtt met í kvöld með því að spila báðar sinn níunda oddaleik á ferlinum. Kristrún hefur nú spilað oddaleik í sjö seríum í röð í úrslitakeppni. Sigrún er í oddaleik í undanúrslitum annað árið í röð en hún tapaði með Grindavík við sömu kringumstæður í fyrra. Liðsfélagi þeirra, Jóhanna Björk Sveinsdóttir, spilaði tvo oddaleiki með Haukum í úrslitakeppninni í fyrra. Eini Keflvíkingurinn sem hefur tekið þátt í oddaleik er fyrirliðinn Erna Hákonardóttir og það bara tvisvar sinnum. Erna kom hins vegar ekki inn á í þessum leikjum, hvorki í oddaleik með Njarðvík í undanúrslitum 2011 né þegar Snæfell vann Hauka í úrslitaleik um titilinn í fyrra. Oddaleikur Keflavíkur og Skallagríms hefst klukkan 19:15 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4 HD.Oddaleikir leikmanna hjá Keflavík og SkallagrímiKeflavík Erna Hákonardóttir 2 (2 sigrar - 0 töp)Samtals 2Skallagrímur Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 8 (5 sigrar - 3 töp) Kristrún Sigurjónsdóttir 8 (4-4) Guðrún Ósk Ámundadóttir 5 (4-1) Jóhanna Björk Sveinsdóttir 3 (2-1) Fanney Lind Thomas 3 (1-2) Ragnheiður Benónísdóttir 2 (0-2)Samtals 29
Dominos-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Sjá meira