Krefjast viðeigandi aðstoðar fyrir fanga Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 3. apríl 2017 09:52 Litla Hraun. vísir/anton
Afstaða, félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, krefja Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra um tafarlausar aðgerðir í kjölfar frétta um fanga sem kveikti í klefa sínum á Litla-Hrauni.RÚV greindi frá því síðastliðinn mánudag að fjórir fangaverðir hafi réttarstöðu sakbornings vegna atviks á Litla Hrauni í byrjun árs þegar fangi kveikit í fangaklefa sínum. Einn fangavarðanna hefur verið leystur undan starfsskyldum sínum og er því ekki starfandi í fangelsinu. Í fréttatilkynningu frá félaginus egir að skortur sé á fagmenntuðu heilbrigðisstarfsfólki í fangelsi. „Í dag er fangavist enda bara geymsla þar sem lítil sem engin endurhæfing og uppbygging fer fram, en eins og Afstaða hefur ítrekað vakið athygli á hefur til að mynda ekki verið starfandi geðlæknir við fangelsin síðan 2013,” segir í tilkynningunni. „Fyrir vikið er fárveikt fólk tekið úr umferð, sett í fangelsi til geymslu – í stað þess að fundin séu úrræði og lausnir sem samfélaginu eru til hagsbóta, sem og þeim sem hættan stafar af. Það fylgir því nefnilega mikil ábyrgð að svipta einstaklinga frelsi og sú frelsissvipting hlýtur að þurfa að hafa einhvern tilgang. Framsýni, sem byggð er á stefnumótun hins opinbera og heildarsýn í málaflokknum, virðist algjörlega skorta þegar hættulegir einstaklingar eru sviptir frelsi sínu. Þeir eru í raun bara fjarlægðir af götunni og settir í fangelsi til geymslu.“ Bent er á umfjöllun Kastljóss um málefni einstaklings sem virtist alltaf enda í faneglsi þar sem enga hjálp var að fá, þó að viðkomandi hafi þurft á aðstoð geðheilbrigðiskerfisins að halda. „En, hversu oft eigum við að þurfa að fara í gegnum slíka umræðu áður en gripið er í taumana, geðheilbrigðisþjónustu og geðheilbrigðismati komið á í fangelsum landsins – og fárveikum einstaklingum komið í réttar hendur þar sem viðeigandi aðstoð er að fá, en ekki bara kastað til geymslu í fangelsin?“ Þá segja samtökin að Umboðsmaður Alþingis hafi bent stjórnvöldum á að sé geðsjúkur maður sem sakfelldur hefur verið fyrir refsilagabrot vistaður í afplánunarfangelsi hér á landi kunni slík ráðstöfun að ganga nærri því að teljast brot á fyrirmælum 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar og 3. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, að minnsta kosti ef honum er ekki tryggð þar viðeigandi læknisþjónusta. „Afstaða krefst þess að dómsmálaráðherra hlutist til án tafa við að tryggja viðkomandi einstaklingi stjórnarskrárbundinn rétt til viðeigandi aðstoðar. Verði ekki orðið við slíku ákalli mun Afstaða óska eftir samvinnu við Fangavarðafélag Íslands um að leita til alþjóðlegra eftirlitsaðila af þessu tilefni.“
Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira