Lífið samstarf

Klæddu þig á 90 sekúndum!

Tveir þátttakendur voru valdir úr hópi rúmlega 1.800 stráka.
Tveir þátttakendur voru valdir úr hópi rúmlega 1.800 stráka.
Verslunin Jack&Jones í Smáralindinni stóð nýlega fyrir skemmtilegum leik sem heitir 90 sekúndur í Jack&Jones. Þar fengu þrír strákar tækifæri til þess að klæða sig í eins margar flíkur og þeir gátu á á 90 sekúndum.

Leikurinn var í samvinnu við útvarpsstöðina FM95.7 en yfir 1.800 strákar skráðu sig tl leiks. Tveir heppnir þátttakendur fengu tækifæri til þess að spreyta sig á 90 sekúndum auk þess sem einn heppinn var valinn úr hópi viðskiptavina.

Hér má sjá skemmtilegt myndband frá leiknum:

 

Vinningshafinn, sá sem náði klæða sig í flestar flíkur, fékk 100.000 króna gjafabréf í Jack&Jones og ætti því að vera nokkuð vel settur út árið en að auki fengu allir strákarnir þrír að eiga öll fötin sem þeir náðu að klæða sig í. 

„Við mælum með því að fólk fylgist vel með því sem verður um að vera í Jack&Jones á næstunni því það er aldrei að vita nema að við skellum í annan svona skemmtilegan viðburð þar sem heppnir viðskiptavinir verða gladdir með veglegum vinningum!,“ segir Lovísa Anna Pálmadóttir markaðsstjóri.

Fylgist með @jackandjonesiceland á Facebook og Instagram.

Keppendur fengu 90 sekúndur til að klæðast eins mörgum flíkum og hægt var.
Það þarf talsverða útsjónarsemi til að klæðast mörgum flíkum á 90 sekúndum.
Lagt af stað á fullri ferð!





Fleiri fréttir

Sjá meira


×