Slökkviliðsmenn í jómfrúarferð glímdu við alelda bíl í Staðarskála Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. mars 2017 20:15
Eldur kviknaði í sendiferðabíl Flugfélags Íslands á bílaplaninu við Staðarskála um klukkan hálf eitt í hádeginu í dag. Svo heppilega vildi til að ökumaðurinn hafði fært bílinn frá bensíndælunum augnablikum fyrr. Pétur Ragnar Arnarsson, slökkviliðsstjóri á Hvammstanga, segir í samtali við Vísi að útkall hafi borist klukkan hálf eitt og var slökkviliðið mætt á vettvang átján mínútum síðar. „Við vorum mjög fljótir á staðinn og það gekk vel að slökkva,“ segir Pétur. Ökumaðurinn hafi sem fyrr segir fært bílinn skömmu áður frá bensíndælunum vegna þess að honum fannst bíllinn farinn að hitna. Ætlaði hann að athuga með olíuna á bílnum þegar allt í einu kviknaði í vélarúminu. Nýi slökkviliðsbíllinn sem mikil ánægja ríkir með hjá brunavörnum Húnaþings vestra.Pétur Arnarsson„Það var mikil mildi að hann ók bílnum frá dælunum því hann var alelda þegar við komum,“ segir Pétur Ragnar. Í bílnum voru ýmsir varahlutir, olía og því um líkt fyrir flugvélar. Allt er ónýtt, þar með talinn bíllinn. Pétur Ragnar segir að slökkvliðsmönnunum hafi krossbrugðið þegar sprenging varð á meðan á slökkvistörfum stóð. Um var að ræða flugvéladekk í farangurstými bílsins sem sprakk.Eftir stendur að enginn slasaðist og slökkvistarf gekk vel. Þannig vill til að um var að ræða jómfrúarútkall á nýjum bíl slökkviliðsins.„Hann kom alveg svakalega vel út,“ segir Pétur Ragnar og er ánægður hve fljótir þeir voru á staðinn. Ekki liggur fyrir hvers vegna kviknaði í bílnum.
Mest lesið Epstein-skjölin birt Erlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Talinn hafa komið til landsins til að stela Innlent Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Innlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Fleiri fréttir Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Kílómetragjaldið verður að veruleika og hvassviðri um jólin Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Telja innbrot og umferðarlagabrot mesta vandamálið Katrín orðin stjórnarformaður Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Sjá meira