Skýrsla Kidda Gun: Logi hafði hugrekkið sem Hauka skorti Kristinn Geir Friðriksson skrifar 20. febrúar 2017 09:30 Logi Gunnarsson, leikmaður Njarðvíkur. Vísir/Ernir
Það vissu allir mikilvægi leiksins fyrir Haukana þegar Njarðvíkingar lögðu bílnum fyrir utan Ásvelli i Hafnarfirði. Haukamenn vissu nákvæmlega hvað klukkan sló; liðið þurfti á sigri að halda til þess að halda pressunni á Skallagrím í fallbaráttu liðanna tveggja. Þetta vissu Haukamenn en virtust ekki hafa taugarnar til þess að klára leikinn gegn Njarðvíkingum, sem komu alls ekki með sinn besta leik í farteskinu. Leikurinn varð jafn og spennandi og með skynsamlegu spili og áræðni hefðu Haukamenn auðveldlega getað unnið leikinn en það var Njarðvíkinga að sækja stigin, einmitt með áræðni og sigurviljann að vopni.Baráttan skilaði sér bara í varnarleikinn Það verður ekki tekið af báðum liðum að þau mættu með flott hugarfar inní þennan mikilvæga leik. Baráttan og stemningin sem geislaði af liðunum náði þó aldrei lengra en inní varnarleik liðanna. Bæði lið spiluðu fantavörn þar sem menn komust lítt áleiðis þegar keyrt var inní. Njarðvík byrjaði betur og náði að loka á flestar sóknaraðgerðir Hauka, þó með góðri hjálp Haukamanna sem hittu hvorki í þennan heim né annan á löngum köflum í fyrri hálfleik. Gestirnir héldu heimamönnum í þrettán stigum í fyrsta hluta og þó þeir hafi ekki náð að skora mikið sjálfir leiddu þeir verðskuldað. Í öðrum hluta náðu heimamenn að rétta sinn hlut nokkuð og leiddu í hálfleik, 37-33. Varnarleikur beggja liða var nokkuð þéttur í fyrri hálfleiknum en ég væri verulega ógætinn ef ég myndi ekki einnig minnast á aumingjaskapinn sem sást oft bregða fyrir í sóknarleik beggja liða. Vörnin var þétt jú en leikmenn beggja liða voru einnig að klúðra upplögðum tækifærum sem á venjulegum degi hefði farið ofan í körfuna. Skotnýtingin var skelfileg hjá báðum liðum og það leit út fyrir að allir leikmenn væru samstíga í því að hitna ekki í leiknum.Daníel Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur.Vísir/ErnirLogi situr aldrei í aftursætinu Seinni hálfleikur var svo eftirmynd þess fyrri; Njarðvíkingar náðu aftur undirtökunum með frábærum varnarleik og ögn betri sóknarleik en andstæðingurinn. Haukamenn héldu áfram að klikka úr ótrúlegustu færum nema núna á móti svæðisvörn að mestu, sem Njarðvíkingar settu á í þeirri von að nýta sér lélega nýtingu heimamanna í þristum. Þetta gekk vel fyrir gestina því Haukar voru einfaldlega allt of ragir við að bæði keyra á vörnina til að skapa eða skjóta opnum skotum sinum, hvað þá hitta þeim þegar leikmönnum tókst að afla hugrekkis til að loks skjóta tuðrunni. Góður kafli heimamanna í byrjun fjórða hluta gaf til kynna að liðið ætlaði sér að ná í sigurinn. Kristján Leifur Sverrisson og Cedrick Bowen komu sterkir inn og þegar fimm mínútur lifðu leiks var staðan 63-61 og ekki útlit á öðru en að Haukar væru í bílstjórasætinu. Þeir sem hinsvegar þekkja Loga Gunnarsson eitthvað vita að hann situr ekki í aftursæti í bílum, og hvað þá farþegasæti. Hann keyrir sína bíla og þegar síðustu fimm mínúturnar eru spilaðar lætur hann reyna á vélina.Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka.Vísir/EyþórÍ gærkveldi fór Logi af stað og skoraði tíu af síðustu sautján stigum liðsins á þessum lokakafla. Hann hafði það hugrekki sem Haukamenn höfðu ekki fundið allan leikinn og það var hann sem dró sitt lið áfram með frábærum keyrslum upp að körfunni og stigum upp úr þeim. Jafnt og þétt náðu gestirnir undirtökum og héldu út leikinn á meðan ragir Haukamenn uppskáru lítið í sóknarleik sínum. Illa ígrundaðar ákvarðanir í sókn, ásamt glötuðum tækifærum til að gera mun betur í góðum aðstæðum, urðu svo til þess að sigurmöguleikar Hauka runnu milli fingra reyndustu leikmanna deildarinnar. Haukamenn áttu alla möguleika á að vinna leikinn en áttu aldrei skilið að gera það miðað við hvernig leikmenn liðsins spiluðu seinni hálfleikinn og þá sérstaklega síðustu mínútur leiksins.Ekki hlið á stórri hlöðu Það er varla hægt að finna mikið að varnarleik liðanna; Svæðisvörnin hjá Njarðvík var klárlega ekki sú besta sem ég hef séð en nægilega góð til að koma Haukum úr jafnvægi svo leikmenn hittu vart hlið á stórri hlöðu (liðið með 32% nýtingu heilt yfir og 15% í þristum!). Vörn heimamanna var oftast mjög góð, hreyfanleg og með góðri hjálparvörn en ekki á síðustu fimm mínútum leiksins, þegar Logi pakkaði henni saman uppá eigin spýtur. Sóknarleikur Njarðvíkur var kannski ekki uppá sitt besta en gerði akkúrat það sem þurfti til að þess að vinna leikinn og líklega allt í samræmi við plan liðsins fyrir leik, þ.e. passa áhlaup Haukanna (sérstaklega þristana) og hafa leikinn jafnan til loka og ná svo einfaldlega í sigurinn. Þarna sýndu Njarðvíkingar áræði og þor, ásamt skynsemi sem prýðir liðið.Emil Barja í leik með Haukum.Vísir/AntonHafa gaman að körfubolta Það besta sem kom út úr liði Hauka var af bekknum; Kristján og Bowen áttu spretti á mikilvægum tíma í leiknum en fengu ekki að halda þeim góða kafla áfram. Byrjunarliðið var skelfilegt sóknarlega og gegn svæðisvörn gestanna fá allir falleinkunn. Liðið þarf að finna leiðir til þess að þora að skora því þegar svona seint er liðið á keppnina er alls ekki nóg að mæta með kraft, baráttu og varnarleik, heldur verður liðið að finna einhvern vott af sóknarflæði sem liðsheildin getur notað í jöfnum leikjum – flestir leikirnir sem eftir eru verða akkúrat svona og menn verða að kúpla sig út úr þessum raggeitarstíl sem einkenndi liðið í gær og fara að hafa gaman að því að spila körfubolta, sem og hafa trú á eigin getu og getu liðsins.Logi frábær en Jóhann bestur Gott gengi Njarðvíkur eftir breytingarnar miklu heldur áfram. Í gær var það reynsla og hugrekki sem færði þeim stigin tvö. Munurinn á liðinum í gær voru Íslendingarnir innan liðanna; í öðru þeirra voru menn hikandi, ragir og fullir efa um eigið ágæti; í hinu voru reynslumestu mennirnir tilbúnir að leggjast á liðssverðið svo sigur gæti unnist, skeytingarlausir um hvern útkoman yrði – þeir reyndu a.mk. og það var meira en flestir Haukamenn geta stært sig af. Logi var frábær í leiknum, þá sérstaklega á lokamínútum hans. Besti maður leiksins var hinsvegar Jóhann Ólafsson, sem átti ekki bara góðan sóknarleik heldur frábæran varnarleik. Hann batt liðið saman og átti flotta tvennu, 18 stig, 10 fráköst og samtals 28 framlagspunkta. Liðsheildin gerði nákvæmlega það sem hún átti að gera og þegar á þurfti gerðu einstaklingar innan liðsins akkúrat það sem þeir fá borgað fyrir að gera. Niðurstaðan var einfaldlega sú að fullveðja óhrædd karldýr sigruðu spéhrædda unglinga.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið og viðtöl: Haukar - Njarðvík 73-78 | Vandræði Hauka aukast enn Vandræði Hauka í Domino's deild karla aukast enn en í kvöld tapaði liðið fyrir Njarðvík á heimavelli, 73-78, í kvöld. 19. febrúar 2017 21:45 Mest lesið Bjórinn gefins og Reykjavíkurborg standi í vegi fyrir Víkingum Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap Íslenski boltinn Eitt mark dugði og Skytturnar enn á toppnum Enski boltinn Real vann í mögnuðum El Clásico Fótbolti Landsliðskonan á von á barni Fótbolti „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Íslenski boltinn Matty Cash afgreiddi City Enski boltinn Nýtt fjölnota íþróttahús KR muni kosta rúma þrjá milljarða Sport Sjáðu mörkin sem björguðu KR og felldu Vestra og Aftureldingu Fótbolti Nýliðinn kom, sá og sigraði fyrsta kvöldið Sport Fleiri fréttir Elvar skoraði tólf í naumu tapi Tilþrifin: Varin skot og ótrúlegar körfur Valsmanna Þriðja tapið í röð hjá Jóni og félögum Fáránlegt eða klókt hjá Kristófer? „Ef það má þá gerir fólk það“ Brassi tekur við af Billups „Það er æðislegt að kveðja húsið svona“ Uppgjörið: ÍA - Álftanes 76-74 | ÍA kvaddi Vesturgötuna með stæl Uppgjörið: Stjarnan - ÍR 91-93 | ÍR skellti meisturunum „Ekki æskilegt og ekki það sem körfuboltinn vill standa fyrir“ Nær fimmtán árum og ætlar með Ísland á HM Stjórnarmaður KKÍ auglýsir ólöglega veðmálastarfsemi Handtökur í NBA: Lak upplýsingum um meiðsli James og bað um bita af kökunni Mál Kristófers enn til skoðunar og fleiri komin á borð KKÍ Uppgjörið: Ármann-Keflavík 94-107 | Öruggt hjá Keflvíkingum Daníel: Ég fór í smá ævintýra starfsemi Uppgjörið: Þór Þ. - Valur 117-119 | Vals sigur eftir tvær framlengingar Uppgjörið: Njarðvík-Tindastóll 98-90 | Njarðvíkingar skelltu Stólunum Átti sumar engu öðru líkt „Ég held að bæði lið séu ekkert himinlifandi með sína frammistöðu“ Uppgjörið: Grindavík-KR 78-77 | Arnór Tristan með sigurkörfuna Þjálfari og leikmaður í NBA handteknir Sá eftirsóttasti treystir bara á pabba gamla Þrenna Maddie Sutton dugði ekki á Hlíðarenda Elvar tapaði á grátlegan hátt á móti gömlu félögunum Uppgjör: Keflavík - Haukar 94-84 | Keflvíkingar tóku Íslandsmeistarana Nablinn sparkaði upp hurðinni í byrjun þáttarins Pedersen með landsliðið til 2029 Breyta reglum eftir brellu Stjörnunnar Troðslur og Braveheart fagn í Kemi tilþrifum umferðarinnar Uppgjörið: Grindavík-Stjarnan 79-66 | Frábær fjórði hjá Grindavík Sjá meira
Leik lokið og viðtöl: Haukar - Njarðvík 73-78 | Vandræði Hauka aukast enn Vandræði Hauka í Domino's deild karla aukast enn en í kvöld tapaði liðið fyrir Njarðvík á heimavelli, 73-78, í kvöld. 19. febrúar 2017 21:45