Vaðlaheiðargöng farin 30% fram úr áætlun Haraldur Guðmundsson skrifar 22. febrúar 2017 08:00 Einungis á eftir að grafa 441 metra í Vaðlaheiðargöngum. Samkvæmt upphaflegri áætlun áttu þau að opna fyrir umferð í desember síðastliðnum. Vísir/Auðunn
Kostnaður við Vaðlaheiðargöng er samkvæmt nýjustu tölum stjórnenda verkefnisins rúmir ellefu milljarðar króna á verðlagi í árslok 2011. Verkið er því komið allt að 30 prósentum fram úr áætlun. Ljóst er að rúma 3,2 milljarða króna að núvirði vantar upp á miðað við upphaflega áætlun þegar virðisaukaskattur hefur verið lagður ofan á. „Við erum í ágætis sambandi við stjórnvöld og erum að sjálfsögðu að ræða við þau um fjármögnun verksins sem er auðvitað í skoðun núna. Það þarf viðbótarlán og það er verið að ræða það bæði við Seðlabanka og fjármálaráðuneytið. Það er í eðlilegu ferli en ekki hægt að setja neina dagsetningu á hvenær niðurstaða fæst í það,“ segir Ágúst Torfi Hauksson, stjórnarformaður Vaðlaheiðarganga, í samtali við Markaðinn.Ágúst Torfi Hauksson, stjórnarformaður VaðlaheiðargangaBúinn að greiða 7,6 milljarða Upphaflega var gert ráð fyrir að göngin myndu kosta 8.730 milljónir auk virðisaukaskatts á verðlagi 2011. Samkvæmt svari Ágústs við fyrirspurn Markaðarins er áætlaður kostnaður, eftir þau áföll sem dunið hafa á verkefninu, um 27 til 30 prósent umfram það ef frá eru taldar verðbætur á framkvæmdatíma. Þegar tölurnar sem Ágúst vísar í voru teknar saman í lok september í fyrra var verkkaupinn Vaðlaheiðargöng hf. búinn að greiða um 6,8 milljarða fyrir verkið auk 800 milljónir króna í verðbætur. „Varðandi kostnað vegna leka beggja megin þá er það enn í vinnslu og endanlegur kostnaður vegna þessara frávika mun ekki liggja fyrir fyrr en dregur nær verklokum,“ segir í skriflegu svari Ágústs. Þar kemur einnig fram að áætluð verklok eru sumarið 2018. Þegar fyrsta formlega sprenging ganganna var sprengd í júlí 2013 áttu þau að vera tilbúin í desember síðastliðnum. Vatnslekar beggja megin í göngunum og aðrar uppákomur eins og hrun úr gangaloftinu hafa seinkað verkinu um eitt og hálft ár miðað við bjartsýnustu spár. „Nú er verið er að fara í gegnum setlag Eyjafjarðarmegin sem tefur verkframvindu en unnið er á báðum stöfnum núna og hefur verið frá því í nóvember,“ segir Ágúst.Vildi ná sumrinu 2017 Alþingi samþykkti 8,7 milljarða króna ríkislánið í júní 2012. Fyrir þann tíma var gert ráð fyrir að lífeyrissjóðir tækju þátt í fjármögnun verkefnisins en af því varð ekki. Þáverandi ríkisstjórn ákvað að lánið yrði fjármagnað úr ríkissjóði til skamms tíma eða til ársins 2018. Það yrði þá endurfjármagnað með útgáfu verðtryggðs skuldabréfs en göngin áttu þá að vera orðin sjálfbær með innheimtu veggjalds. Framkvæmdin var ekki á samgönguáætlun og bent var á að lánveitingin felur í sér talsverða áhættu fyrir ríkið. Pétur Þór Jónasson, fyrrverandi stjórnarformaður Vaðlaheiðarganga, sagði í samtali við Fréttablaðið í apríl 2015 mikilvægt að göngin yrðu farin að skila félaginu tekjum sumarið 2017. Einum mánuði síðar ítrekaði Pétur við DV hversu mikilvægt það væri enda tekjudreifingin af veggjöldum mjög ójöfn yfir árið. Lánasamningurinn við ríkið hljóðaði upp á að ákveðinn reynslutími fengist áður en lánið yrði endurfjármagnað. Seinkun verksins myndi því hafa sömu áhrif á endurfjármögnunina. Fjármálafyrirtækið Gamma vann síðasta vor mat á þjóðhagslegum áhrifum Vaðlaheiðarganga. Samkvæmt því mun þjóðhagslegt tap þeirra nema rúmum átta milljörðum króna. Eldra mat sem unnið var með sömu aðferðafræði í árslok 2012 sýndi tap upp á 4,3 milljarða. Lengi hefur verið ljóst að framkvæmdin ætti eftir að verða kostnaðarsamari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Í febrúar 2014 opnaðist stór heitavatnsæð í göngunum Eyjafjarðarmegin. Afköst í borun ganganna hrundu þá um rúmlega helming úr 60 til 70 metrum að meðaltali á viku. Rúmu ári síðar fór kalt vatn að leka úr stórri sprungu í lofti Fnjóskadalsmegin. Vinna við að loka henni hófst ekki fyrr en í febrúar 2016. Vatnið sem þá hafði safnast saman í göngunum var um tíma svo djúpt að nota þurfti árabát til að sigla inn að stafni. Forsvarsmenn verkefnisins sögðu að aldrei áður hefðu viðlíka aðstæður skapast í gangagerð hér á landi. Göngin eru nú 6.764,5 metra löng og því búið að grafa um 93 prósent af heildarlengdinni. Þau lengdust um 23,5 metra í síðustu viku en afköstin hafa minnkað síðustu vikur eftir að verktakar boruðu inn á þykk setlög. Ef framvindan verður upp á jafnmarga metra á viku veður gegnumslag eftir átján vikur eða í júnímánuði. Verktakar Ósafls hefðu þá einungis eitt ár til að ljúka verkinu miðað við áform stjórnar Vaðlaheiðarganga um opnun sumarið 2018.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Viðskipti innlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt Sjá meira