Bónusar Arion lækkuðu um 200 milljónir króna Haraldur Guðmundsson skrifar 15. febrúar 2017 08:30 Arion banki er eini af stóru viðskiptabönkunum þremur sem enn greiðir kaupaukagreiðslur til starfsmanna. Vísir/Pjetur
Arion banki skuldbatt sig í fyrra til að greiða 395 milljónir króna í kaupaukagreiðslur til starfsmanna fyrirtækisins og dótturfélaga þess. Samstæðan gjaldfærði þar af 331 milljón vegna bónusa til starfsmanna bankans. Höskuldi H. Ólafssyni bankastjóra var lofað 7,1 milljón króna í bónus ofan á 58,2 milljóna árslaun hans. Kaupaukagreiðslurnar sem Arion banki gjaldfærði árið 2015 námu 599 milljónum króna að launatengdum gjöldum meðtöldum. Bónusar til starfsmanna fyrirtækisins lækkuðu því um 204 milljónir milli ára. Greiðslu 40 prósenta kaupaukans er frestað um þrjú ár í samræmi við reglur Fjármálaeftirlitsins (FME) um kaupaukakerfi fjármálafyrirtækja. Á árinu 2016 lofaði Arion banki einnig að greiða níu framkvæmdastjórum bankans samtals 30,3 milljónir í bónusa. Í árslok 2016 nam skuldbinding vegna kaupaukakerfis þess 1.453 milljónum króna samanborið við 1.056 milljónir árið á undan. Alls störfuðu 1.239 manns hjá samstæðu Arion banka og dótturfélögum í árslok 2015 og þar af 869 hjá bankanum. Laun og tengd gjöld námu 16,7 milljörðum árið 2016 samanborið við 14,9 milljarða árið áður. Í ársreikningi bankans, sem fyrirtækið birti á mánudag, var bent á að kjarasamningsbundnar launahækkanir, sem tóku gildi um áramótin 2015/2016, hækkuðu launakostnað samstæðunnar verulega. Því hafi verið leitað leiða til að draga úr launakostnaði og ákveðið að fækka starfsfólki bankans um sex prósent. Þar er vísað til þess þegar Arion sagði 46 starfsmönnum af öllum sviðum bankans upp í lok september síðastliðins.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Bandaríkjadalur besti kosturinn fyrir Ísland Viðskipti innlent Flug milli Kína og Keflavíkur hefst í vor Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Sjá meira