Ársafkoma Regins í samræmi við væntingar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. febrúar 2017 21:16 Helgi S. Gunnlaugsson, forstjóri Regins. Vísir/Valli
Afkoma Regins á árinu 2016 var góð og í samræmi við væntingar. Rekstrartekjur námu 6.643 m.kr.og þar af námu leigutekjur 6.111 m.kr. Leigutekjur hafa hækkað um 22% samanborið við árið 2015. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir / EBITDA var 4.377 m.kr. sem samsvarar 21% hækkun samanborið við árið 2015. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Helga S. Gunnarssyni, forstjóra Regins. Í tilkynningunni kemur einnig fram að eignasafn Regins samanstendur af fullgerðu atvinnuhúsnæði með háu útleiguhlutfalli og traustu og stöðugu tekjustreymi. Í lok árs 2016 átti Reginn 124 fasteignir. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins var rúmlega 316 þúsund fermetrar. Útleiguhlutfall fasteignasafnsins er 96% miðað við tekjur. Þá kemur fram að aldrei hefur verið skrifað undir leigusamninga um jafnmarga fermetra hjá félaginu og árið 2016, eða um 58.000 fermetra. Rúmlega helmingur þeirra samninga voru nýir leigusamningar, aðrir voru endurnýjun eldri samninga. Á árinu 2016 voru tvær byggingar teknar í notkun fyrir opinber fyrirtæki eftir gagngerar breytingar. Þetta voru Hlíðasmári 1 sem Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur nú tekið í notkun og Tjarnarvellir 11 sem Þjóðminjasafnið tók við undir varðveislu- og rannsóknarsetur um mitt ár 2016. Stjórnendur félagsins telja að horfur í rekstri séu góðar og engar vísbendingar séu um annað en að áætlanir félagsins standist. Á árinu 2017 verða áherslur félagsins áfram á styrkingu og vöxt eignasafnsins. Fyrir utan hefðbundin rekstrarmál verður unnið að endurskipulagningar og uppbyggingarverkefnum félagsins s.s. eftirfylgni með endurskipulagningu Smáralindar, uppbyggingu Hafnartorgs í miðbæ Reykjavíkur, uppbyggingu Alhliða íþróttahúss við Egilshöll ásamt fjölda nýrra leiguverkefna.
Mest lesið Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Bandaríkjadalur besti kosturinn fyrir Ísland Viðskipti innlent Flug milli Kína og Keflavíkur hefst í vor Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Sjá meira