Ellý Alda nýr skrifstofustjóri í velferðarráðuneytinu atli ísleifsson skrifar 15. febrúar 2017 11:59 Ellý Alda Þorsteinsdóttir. velferðarráðuneytið
Ellý Alda Þorsteinsdóttir hefur verið skipuð skrifstofustjóri á skrifstofu félagsþjónustu í velferðarráðuneytinu. Velferðarráðuneytið greinir frá því að ráðgefandi hæfnisnefnd hafi metið Ellý Öldu hæfasta úr hópi 21 umsækjanda. Hún tekur við starfinu af Bolla Þór Bollasyni sem gegnt starfi skrifstofustjóra í velferðarráðuneytinu frá stofnun þess 1. janúar 2011. „Ellý Alda lauk starfsréttindanámi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands árið 1988 og meistaranámi í stjórnun frá Háskólanum í Kent árið 1991. Hún hefur allan starfsaldur sinn starfað við málefni félagsþjónustu hjá Reykjavíkurborg þar sem hún hóf störf árið 1988 sem félagsráðgjafi í stuðnings- og barnaverndarmálum á Félagsmálastofnun. Frá árinu 2014 hefur Ellý Alda verið skrifstofustjóri á skrifstofu sviðsstjóra á velferðarsviði Reykjavíkurborgar, en áður var hún skrifstofustjóri velferðarþjónustu (2005–2013), framkvæmdastjóri ráðgjafarsviðs (2000–2005) og yfirmaður fjölskyldudeildar sem og framkvæmdastjóri Barnaverndarnefndar Reykjavíkur (1995–2000), forstöðumaður hverfaskrifstofu (1991–1995) og deildarstjóri meðferðardeildar þar sem hún sinnti stuðnings- og barnaverndarmálum (1990 –1991). Í mati hæfnisnefndar segir að það sé afgerandi styrkleiki Ellýjar Öldu hve djúpa og breiða þekkingu hún hefur á þeim málaflokkum sem falla undir skrifstofu félagsþjónustu í velferðarráðuneytinu. Starfsferill hennar sé glæsilegur og einkennist af stigvaxandi stjórnunarábyrgð sem spanni samtals 26 ár. Hún hafi mikla og fjölbreytta þekkingu og reynslu af opinberri stjórnsýslu og sterka faglega sýn á málefni félagsþjónustu,“ segir í fréttinni.
Mest lesið Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Bandaríkjadalur besti kosturinn fyrir Ísland Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Sjá meira