Dýrasta húsi Bandaríkjanna fylgja 12 bílar 23. janúar 2017 14:36
Nú er til sölu dýrasta hús í Bandaríkjunum, í Bel Air í Kaliforníu og er sett á það 250 milljónir dollara, eða 28,5 milljarðar króna. Ekki nóg með það að í húsinu séu fáránlega mörg herbergi, keilubraut, þyrla, bíósalur, öll húsgögn, fjölmörg listaverk og sundlaugar þá fylgir því einnig 12 bíla safn og 10 mótorhjól. Á meðal þeirra bíla eru Rolls Royce Dawn, Ferrari 488, tveir Pagani Huayra, Spyker C8, Ariel Atom 3, Bentley Continental GT blæjubíll, Bugatti Veyron, Morgan bíll á þremur hjólum og einn Rolls Royce enn, sem ekki er vitað af hvaða gerð er. Þá fylgir húsinu einnig 1936 árgerðin af Mercedes Benz 540K. CNBC sjónvarpsstöðin metur t.d. hvern Pagani bílanna á 2 milljónir dollara, en Benz bílinn á 15 milljónir dollara. Það er þó ef til vill mikið vanmat því síðasta eintak af slíkum bíl fór á 11.770.000 dollara hjá uppboðshúsi Gooding & Company á Pebble Beach árið 2012. Forvitnilegt verður að sjá hvort mikil eftirspurn sé eftir þessu húsi, en vissulega fæst ýmislegt góðgæti fyrir aurinn. Hrikalega flott myndskeið af aðbúnaði í húsinu má sjá hér að ofan. Annar eins lúxus hefur líklega óvíða sést.Mercedes Benz 540K af árgerð 1936 er verðmætur bíll og þessi virðist í fínu ástandi.Pagani Huayra.
Mest lesið Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Innlent Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Innlent Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Erlent Gosmóðan heldur áfram Innlent Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Innlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent