Gjaldeyriskaup jukust um 114 milljarða Hörður Ægisson skrifar 12. janúar 2017 07:00 Már Guðmundsson seðlabankastjóri. vísir/stefán
Seðlabanki Íslands keypti erlendan gjaldeyri fyrir samtals 386 milljarða króna 2016 og jukust kaup bankans um 42% á milli ára. Þrátt fyrir þessi miklu gjaldeyrisinngrip hækkaði gengi krónunnar um 18,4 prósent á árinu. Þá stækkaði gjaldeyrisforði Seðlabankans um 163 milljarða og nam 815 milljörðum í árslok 2016. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Seðlabankinn sendi frá sér í gær en þar segir að velta á millibankamarkaði með gjaldeyri hafi verið 702 milljarðar, sem er 42% aukning frá fyrra ári. Hlutur Seðlabankans í veltunni var 55% og hélst óbreyttur á milli ára. Þá var óskuldsettur gjaldeyrisforði, eða sá hluti forðans sem er fjármagnaður í krónum innanlands, samtals 592 milljarðar í lok síðasta árs. Það er tæplega hundrað prósent aukning á einu ári. Afgangur í utanríkisviðskiptum, lækkandi gjaldeyrisstaða bankakerfisins og nokkrir stórir fjármagnsflutningar einkaaðila til landsins ollu viðvarandi þrýstingi til styrkingar á gengi krónunnar á árinu. Þá var einnig um þrjátíu milljarða gjaldeyrisinnstreymi á fyrri hluta ársins vegna nýfjárfestingar í ríkisskuldabréfum, eða svonefnd vaxtamunarviðskipti. Það innflæði stöðvaðist þegar Seðlabankinn kynnti til sögunnar nýtt fjárstreymistæki í júní 2016. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Sjá meira