Eltir drauma sína Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 20. janúar 2017 11:00 Unnur Eggertsdóttir gerir það gott í Hollywood. Vísir/Valli „
Nýjasta og stærsta verkefnið mitt hingað til er að leika í sjónvarpsþættinum Murder Among Friends. Það er ótrúlega spennandi að fá að leika í bandarísku sjónvarpi. Þetta er heilmikil framleiðsla og mjög virt fagfólk sem kemur að þáttunum,“ segir Unnur Eggertsdóttir, sem mun á næstu dögum leika í annarri syrpu þessara vinsælu þátta sem hafa vakið töluverða athygli vestanhafs. Tökur á þáttunum byrja á þriðjudaginn. „Ég fæ örfáa daga til að læra handritið og vinna mína rannsóknarvinnu fyrir stelpuna sem ég leik,“ segir Unnur, og bætir við að það sé eins gott að standa sig. Á næstu vikum mun Unnur einnig leika í kvikmynd sem heitir Casa Matusita og er framleidd af Prospect House Entertainment. „Það er mjög spennandi. Þar fæ ég að leika á móti stórstjörnum eins og Malcolm McDowell, og nokkrum öðrum sem ég má samt ekki nafngreina enn þá,“ segir hún. Unnur útskrifaðist frá The American Academy of Dramatic Arts í New York í apríl 2016 og fékk aðalverðlaun útskriftarinnar sem besta leikkona árgangsins en í honum voru rúmlega 100 nemendur. „Námið í New York gekk einstaklega vel, þetta voru mjög erfið ár bæði líkamlega og andlega en ég naut hverrar mínútu. Ég er ofboðslega þakklát fyrir þjálfunina sem ég fékk. Kennararnir lögðu mikið upp úr því að maður gæti leikið hvaða hlutverk sem er og alltaf fundið sannleik í karakternum sínum,“ útskýrir hún.Leiklistarheimurinn getur verið flókinn frumskógur„Það var líka lögð mikil áhersla á hvernig maður ætti að bera sig í prufum, hvernig maður ætti að sækjast eftir ákveðnum hlutverkum,“ segir Unnur. Í nóvember ákvað Unnur að elta drauma sína til Los Angeles. „Ég ákvað að eltast við verkefni sem ég tók þátt í í sumar, sem er söngleikur um ævi Marilyn Monroe. Það er verið að setja sýninguna upp í mun stærri uppfærslu á næstu mánuðum, og ég fékk töluvert stærra hlutverk, svo það kom ekki annað til greina en að flytja mig hingað yfir,“ segir hún. „Á meðan undirbúningstímabilið stendur yfir fyrir söngleikinn hef ég reynt að vera dugleg að taka þátt í alls konar verkefnum hér. Til dæmis lék ég í stuttmynd um daginn fyrir mjög flottan bandarískan leikstjóra þar sem ég lék á móti íslensku leikurunum Atla Óskari og Elíasi Helga. Eftirvinnslan á þeirri mynd er að klárast, og svo verður hún send á nokkrar kvikmyndahátíðir. Myndin heitir Gilded og ég er mjög spennt að fylgja henni eftir,“ segir hún. Óhætt er að segja að nóg sé um að vera hjá Unni, og fram undan séu spennandi tímar hjá henni. „Nú, þegar ég er búin að bóka nokkur verkefni og orðin töluvert öruggari í prufum, get ég einbeitt mér frekar að því að sækja um hlutverk sem ég veit að henta mér. Ég er ótrúlega spennt fyrir næstu vikum og mánuðum. Mér finnst fátt jafn mikil snilld og að fá að leika, svo ég vona innilega að ég haldi áfram að vera heppin með verkefni,“ segir Unnur.
Mest lesið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið Klæddu sig upp sem frambjóðendur Lífið Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Lífið Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið „Nú er þessi sprettur á enda“ Lífið Krakkatían: Forsetaefni, Disney og tónlist Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Forsetaefni, Disney og tónlist Klæddu sig upp sem frambjóðendur Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Ofboðslega stolt af dóttur sinni Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór „Nú er þessi sprettur á enda“ Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Fréttatía vikunnar: Kosningar, eldgos og meistarar Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Kjúklinganaggar hollu stjúpunnar Innipúkinn farinn að taka á sig mynd Sigga á Grund er fyrsti heiðursborgari Flóahrepps Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Þetta höfðu netverjar að segja um kappræðurnar Ellefu eftirtektarverð eldhús Forsetaáskorunin: Grefur upp gamlar gersemar úti um allan heim. Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Skrifuðu bók um Sólrúnu Öldu og brunann í Mávahlíð Nafn konunnar flúrað á það allra heilagasta Annar bakaradrengur í ofninum Sjáðu svartþrestina yfirgefa hreiðrið Af vængjum fram: Eins og í bíómynd þegar þau byrjuðu loksins saman Forsetaáskorunin: Áhugatöframaður og hefur safnað skeljum og eldspýtustokkum Kosningavökumolar Höllu og Bjössa Millie Bobby og Bon Jovi yngri í hnapphelduna Einstök hæð í retró stíl við Laufásveg Margar konur sem leita á fæðingarheimilin sjálfar á barnsaldri Sjá meira