Löggurnar borða á Hlemmi Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 2. september 2017 14:00 Ágúst Einþórsson og Maríanna Magnúsdóttir raða snúðum og pítsum í ofna Brauð&Co. Visir/Ernir
Það er þriðjudagshádegi, klukkan er rétt rúmlega ellefu. Hádegisönnin er nýhafin og inni í Mathöllinni á Hlemmi er strax orðið margt um manninn. Á bekkjum inni í Höllinni sitja saman strætófarþegar, ferðamenn, mæður með börn, vinir í mat og pör á hádegisstefnumóti.Matarangan slæðist úr hverju horni. Hlemmur er gjörbreyttur. Þar sem áður var sjoppa sem seldi smurð rúnstykki og majónessamlokur, sælgæti og sígarettur er veitingastaðurinn Kröst. Grill og vínbar sem rekinn er af matreiðslumanninum Böðvari Lemacks. Það er mikið að gera. Vinsælasti réttur staðarins er svokallaður Kröstí-hamborgari Hann er gerður úr feitu rib-eye kjöti, bæði hægeldaður og grillaður. Með hamborgaranum mælir starfsfólkið með Drappier kampavíni. Réttur sem er töluvert langt frá smurðu rúnstykki og kókómjólk.Kristín, Valgerður Björk og Kristrún gæða sér á veitingum í Mathöllinni.Eins og að vera í útlöndum Vinkonurnar Kristín Ólafsdóttir, Valgerður Björk Pálsdóttir og Kristrún Kristinsdóttir eru á meðal gesta sem sitja á bekkjum og gæða sér á hádegismat. Kristín og Valgerður fengu sér samloku frá Bánh mi en Kristrún er að gæða sér á tómatsúpu frá Rabbar barnum með ferskri basilíku. „Súpan er ofboðslega góð og fersk. Ég fékk að klippa ferska basilíku út á súpuna,“ segir Kristrún. Þær Kristín og Valgerður eru líka ánægðar með samlokurnar. „Það var allt dautt hér á Hlemmi,“ segir Valgerður Björk og Kristín tekur undir. „Þetta er mikilvægur liður í að bæta miðborgina, það er búið að umbreyta andanum hér.“ „Ég held að breytingarnar á Hlemmi skipti máli í stærra samhengi. Nú verður tengingin við Hverfisgötu sterkari, efsti hluti miðborgarinnar lifnar við,“ segir Valgerður Björk. „Þetta er eins og að vera í útlöndum, þessir spennandi evrópsku markaðir sem er svo gaman að sækja. Nú eigum við einn lítinn slíkan,“ segir Kristín. „En svo er eitt sem ég verð að nefna, ísinn hjá Ísleifi heppna. Hann er sá trylltasti sem ég hef smakkað,“ segir Valgerður Björk. „Mig langaði eiginlega að fá mér hann bara í hádegismat,“ segir hún.Vaffla frá Ísleifi heppni.Vinsælast hjá börnum Þetta eru góð meðmæli sem ísbúðin fær. Þar stendur vaktina Gunnar Logi Málmkvist Einarsson, rekstrarstjóri og matreiðslumaður. „Ég er að frysta ís með fljótandi köfnunarefni. Það sem gerir okkar ís sérstakan er að við gerum allt á staðnum og notum bara úrvalshráefni. Þegar þú frystir ís með köfnunarefni þá verður áferðin þéttari og ísinn loftminni. Þetta er mjúkur og góður ís. Þetta er talin vera besta aðferðin til að frysta ís. Þú kemur bara og pantar einn skammt af ís og við búum hann til. Börnum finnst skemmtilegt að horfa á, nefnir hann. Hér er eitthvað fyrir alla.“Rakel Eva á Borðinu undirbýr ösina.Snúðar og kaffi Í einu horninu er útibú af Brauði & Co. þar sem vinsælustu snúðar borgarinnar eru bakaðir, þar við hliðina geta gestir og strætófarþegar fengið sér heitt kaffi hjá Te og Kaffi. Maríanna Magnúsdóttir og Ágúst Einþórsson bakarameistari standa við bakaraofnana og baka pítsur og snúða. Anna Ingólfsdóttir stendur vaktina í afgreiðslunni. „Viðtökurnar hafa verið frábærar. Maður finnur að fólk er að fatta þetta. Snúðarnir okkar eru alltaf vinsælastir og strætófarþegar versla mikið hjá okkur. Þeir koma við á morgnana og líka þegar líður á daginn,“ segir Anna. Veitingastaðurinn Borðið sem er á Ægisíðu rekur glæsilegt útibú á Hlemmi. Rakel Eva Sævarsdóttir, einn eigenda, undirbýr hádegisösina. „Þetta er smækkuð útgáfa af veitingastaðnum okkar á Ægisíðu. Við erum með fleiri smárétti hér, erum með kjötáleggin okkar sem við skerum niður fersk hér, áleggsplatta með grilluðu og pikkluðu grænmeti, osta og fleira góðgæti sem gestir okkar þekkja. Fullkomið til að deila og fá sér gott vín eða bjórglas með,“ segir Rakel. „Hádegin eru annasöm. Strætófarþegar versla líka hér. Í gær kom einstaklingur sem var að bíða eftir strætó, hann fékk sér smárétt og rauðvínsglas áður og sat og las í bók áður en hann náði vagninum. Svo kemur líka mikið af fólki á milli sex og sjö og fær sér kvöldmat.“Davíð á Bánh mí segir lögregluna fjölmenna í hádeginu.Fáir í mötuneyti lögreglu Við innganginn á móti lögreglustöðinni er víetnamski staðurinn Bánh mi. Þar er boðið upp á víetnamskar samlokur. Davíð Davíðsson stendur vaktina. „Það er búið að vera mjög mikið að gera og góð stemning. Í hádeginu koma margir starfsmenn fyrirtækja úr nágrenninu og lögreglumenn. Þeir versla mikið hér,“ segir Davíð og telur líklegt að í mötuneyti lögreglumanna á Hverfisgötu sé fámennt þessa dagana.Að kaupa það sem þarf Í einu horninu rekur Bryndís Sveinsdóttir Rabbar barinn þar sem má kaupa ferskt íslenskt grænmeti, humarlokur og súpur. „Íslenskir grænmetisbændur senda grænmetið beint til mín. Ég sel það í lausasölu og því getur fólk komið og keypt sér akkúrat það sem það vantar,“ segir Bryndís og segir hugmyndina að vekja fólk til þess að kaupa það sem það þarf, jafnvel í umbúðum sem það kemur með sjálft. Bryndís Sveinsdóttir rekur Rabbar barinn og selur ferskt grænmeti beint frá bónda.„Við bjóðum líka upp á súpur á hverjum degi og humarlokur sem eru vinsælar svo eitthvað sé nefnt,“ segir hún. Blómabúðin á Hlemmi Bryndís hefur búið töluvert erlendis, í Danmörku og Svíþjóð og athygli vekur að hún selur einnig blóm og pottaplöntur. „Við erum blómabúðin á Hlemmi. Ég er búin að búa erlendis, sex ár í Danmörku og fjögur ár í Svíþjóð, og er alin upp í því núna að fara á markaðinn og kippa blómi með og hjóla með það heim í körfunni. Blóm gleðja, mér finnst þetta ómissandi,“ segir Bryndís. Fyrir utan Mathöllina situr Georg Jónasson myndlistarnemi og bíður eftir strætisvagni. Hann er ekki jafnhrifinn. „Ég varð fyrir vonbrigðum og átti von á meira lífi en minni kaupmennsku.“
Mest lesið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Lífið Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Lífið Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar Lífið Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Matur Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Lífið Superstore-leikari látinn Lífið Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Superstore-leikari látinn Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Bay segir skilið við Smith Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Endar örugglega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni Hver er Endakallinn frá Ibiza? Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Stutt í að uppselt verði í heilt og hálft Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Ástralskur hommasirkus skemmtir börnum og fullorðnum í Tjarnarbíói Húsgögn úr afgöngum og fiskar í gosbrunninum Sjá meira