Á skilorði fyrir gróf brot gegn litlu systur sinni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. júní 2017 13:47 Skýrsla var tekin af systurinni í Barnahúsi eftir að hún hafði greint námsráðgjafa í skóla sínum frá brotunum. Vísir/Valli
27 ára karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn systur sinni. Brotin áttu sér stað fyrir áratug, þegar hann var sextán eða sautján ára en systir hans fimm eða sex ára gömul. Dómurinn er skilorðsbundinn meðal annars vegna þess að það þykir ekki þjóna hagsmunum systur mannsins að bróðir hennar þurfi að sitja inn í fangelsi.Greindi frá brotunum átta árum seinna Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudaginn og birtur á vefsíðu dómstólsins í dag. Brot mannsins gagnvart systur sinni komu ekki í ljós fyrr en árið 2015 þegar hún greindi frá þeim í viðtali hjá námsráðgjafa í skólanum sínum. Brotin áttu sér stað þegar bróðirinn var að passa litlu systur sína.Var hann dæmdur fyrir nokkur nauðgunarbrot en talið er að þau hafi átt sér stað yfir fjögurra eða fimm mánaða tímabil. Móðir systkinanna frétti fyrst af brotunum þegar hringt var úr skóla stúlkunnar eftir viðtalið hjá námsráðgjafanum. Hún segir bróðurinn hafa verið að ljúka grunnskóla um það leyti sem brotin áttu sér stað. Honum hafi liðið illa á þeim tíma og orðið fyrir einelti. Að hennar sögn vildi dóttirin ekki ræða málin innan fjölskyldunnar. Henni hafi þó verið létt eftir að hafa rætt málið við einhvern. Hún væri þó ósátt við að málið væri til meðferðar hjá dómstólum. Hún hefði áhyggjur af því hvað kæmi fyrir bróður hennar. Þó svo að ferlið hefði hjálpað henni, að sögn móðurinnar, yrði það áfall fyrir stúlkuna að sjá bróður sinn fara í fangelsi. Faðir systkinanna sagði fyrir dómi að samband þeirra systkina í dag væri ágætt. Allir biðu þó eftir því hvað kæmi út úr dómsmálinu. Það væri ákveðinn endapunktur.Skrifaði systur sinni afsökunarbréf Niðurstaða geðlæknis sem skoðaði bróðurinn var sú að hann væri sakhæfur. Enginn vafi væri þar á. Enginn grunur væri um alvarlegan geðsjúkdóm. Eftir að málið kom upp bar á þunglyndi og kvíða hjá bróðurnum. Það hafi tengst málinu. Þá væri hann með einkenni einhverfu. Sálfræðingur systurinnar staðfesti orð foreldranna um áhyggjur systurinnar af afdrifum bróður síns í dómsmálinu. Var það mat sálfræðingsins að hagsmunum hennar væri ekki best borgið með því að dæma bróðurinn í fangelsi. Þá hefði systirin ekkert vilja ræða brot bróðurins gegn sér. Bróðirinn hefði auk þess ritað systur sinni bréf þar sem hann bað hana afsökunar. Systurinni hefði liðið betur eftir að hafa lesið bréfið. Þar kom fram að þau búa enn á sama heimili og bróðirinn aðstoði systur sína reglulega með því að skutla henni á milli staða. Þá staðfesti sálfræðingur sem bróðirinn hefur leitað reglulega til undanfarin ár að ekkert benti til þess að hann væri haldinn barnagirnd. Bróðirinn hefði lýst atvikunum á þann veg að honum hefði liðið eins og hann væri að dreyma. Ekki væri talin hætta á að hann bryti aftur af sér.Systur betur borgið með bróður sinn hjá sér Dómarinn, Símon Sigvaldason, komst að þeirri niðurstöðu að dæma bróðurinn í tveggja og hálfs árs skilorðsbundið fangelsi svo hann þarf ekki að sitja inni. Hann hefur ekki áður gerst sekur um refsivarða háttsemi. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um alvarlegt kynferðisbrot gegn yngri systur var að ræða. Þá var litið til þess að hann játaði brot sitt greiðlega og var ungur að árum þegar hann framdi brot sitt. „Hann hefur sýnt mikla iðrun og sent brotaþola bréf þar sem hann biðst fyrirgefningar á gerðum sínum. Þá hefur hann leitað sér aðstoðar vegna þessara brota. Þá er sérstaklega til þess að líta að veruleg áhrif hefur á brotaþola hvort ákærði verður dæmdur í fangelsi. Er vanlíðan brotaþola að stórum hluta tengd því atriði og fram komið að hagsmunum hennar sé betur borgið með því að ákærði fari ekki í fangelsi.“Dóminn í heild má lesa hér.
Mest lesið Hinn 22 ára Tyler Robinson grunaður um morðið á Kirk Erlent Í straffi fyrir skilaboð á vegg Kaffibarsins: „Þetta eru bara skemmdarverk“ Innlent Trump segist nokkuð viss um að grunaður morðingi hafi verið handsamaður Erlent Bregðast við árás á barnaníðing í Fellabæ Innlent Alríkislögreglan birtir myndskeið af morðingjanum Erlent Starfsmenn þingflokks taka pokann sinn Innlent Staðfesta dóm yfir tvíburabræðrunum en refsing Samúels Jóa milduð Innlent Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Úlfarsárdal Innlent Íslendingar í meistaradeild þrátt fyrir herleysið Innlent Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Erlent Fleiri fréttir Stærsti skjálfti síðan í maí fannst í byggð Þurfi að jafna réttindi upp á við en ekki skerða hjá einum hóp Leggur fram öryggis- og varnarstefnu: „Ógnin er veruleg“ Óformlegar verkfallsaðgerðir hjá Play og tilfinningaþrungnir dagar Bregðast við árás á barnaníðing í Fellabæ Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Úlfarsárdal Í straffi fyrir skilaboð á vegg Kaffibarsins: „Þetta eru bara skemmdarverk“ Ríkisstjórnin þverbrjóti leikreglur vinnumarkaðarins Starfsmenn þingflokks taka pokann sinn Vilja afnema áminningarskyldu sem undanfara uppsagnar opinberra starfsmanna Sá yngsti til að verða kjörinn goði hjá Ásatrúarfélaginu Forstöðumenn fangelsa lýsa kerfislægri krísu og segja ástandið óásættanlegt Búin að sjóða vatn í rúman mánuð og segir íbúa ekki treysta vatnsbólinu Þurfa 12-15 milljónir til að halda Ylju opinni um helgar Lýðræðislegri umræðu og samstöðu ógnað Ísland gæti þurft að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða til að standa við skuldbindingar Starfsmannafundur hjá Play og enn leitað að morðingja Charlie Kirk Hæstiréttur tekur fyrir mál móður sem dæmd var í 18 ára fangelsi Bein útsending: Áherslur og forgangsaðgerðir Íslands í loftslagsmálum Ríflega þúsund börn bíða eftir að komast að en ekki 400 Fjórtán áherslur í varnar- og öryggismálum: „Öryggisógnin er raunveruleg og aðkallandi“ Staðfesta dóm yfir tvíburabræðrunum en refsing Samúels Jóa milduð Bein útsending: Skýrsla samráðshóps um inntak og áherslur stefnu í varnar- og öryggismálum Tveir handteknir fyrir húsbrot og einn fyrir að vera ólöglega á landinu Íslendingar í meistaradeild þrátt fyrir herleysið Helgarlokanir leiði fólk til þess að nota efnin í bílakjöllurum Vinirnir vestanhafs hafi áhyggjur af stigmögnun Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Samfélagslegur sparnaður vegna herferðar rúmlega 700 milljónir Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Sjá meira