Fasteignum Íbúðalánasjóðs fækkað um helming Sveinn Arnarsson skrifar 4. mars 2017 07:00 Fjölskyldum sem eru í vanskilum hjá sjóðnum fækkar mjög. vísir/vilhelm
Fasteignum í eigu Íbúðalánasjóðs fækkaði um helming á síðasta ári. Í lok janúar á þessu ári átti Íbúðalánasjóður um 640 íbúðir og hefur frá árinu 2014 selt um þrjú þúsund íbúðir. „Það hefur gengið mjög vel að losa íbúðir og haft jákvæð áhrif á reksturinn. Þegar við seljum náum við að nýta það fjármagn til að styrkja tekjugrunn sjóðsins,“ segir Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs. „Við gerum ráð fyrir að þróunin verði með svipuðum hætti í ár og hún var í fyrra. Markmiðið er að fækka enn frekar íbúðum í okkar eigu og auka gæði lánasafnsins með skilvirkum innheimtum,“ bætir Hermann við.Hermann Jónasson forstjóri ÍbúðalánasjóðsSamhliða velgengni í sölu eigna sjóðsins hefur vanskilum fækkað mjög. Fjöldi heimila í vanskilum í lok janúar 2016 var 1.349 og hefur þeim fækkað um fjörutíu prósent á einu ári. Er það til marks um aukna hagsæld almennings. „Það hefur haft mjög jákvæð áhrif á rekstur sjóðsins og má þakka skilvirkari innheimtuferlum auk ytri þátta í efnahagslífi þjóðarinnar. Minni vanskil þýða aukin gæði lánasafns okkar og valda betri rekstri,“ segir Hermann. Erfið staða á fasteignamarkaði hefur ekki haft áhrif á Íbúðalánasjóð á síðustu árum. Skortur á íbúðum á sölu hefur að einhverju leyti hjálpað til við rekstur sjóðsins. „Skortur á húsnæði hefur ekki með beinum hætti haft áhrif á reksturinn nema kannski að því leyti til að möguleikar okkar hafa verið mjög góðir til að selja íbúðir og við höfum á síðustu árum átt auðvelt með að losa eignir úr safni okkar.“ Staða sjóðsins hefur styrkst á síðustu árum og reksturinn er góður. Gæði lánasafnsins hafa aukist á síðustu árum og sala úr eignasafninu skilað sér í betri sjóði.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira