Svona breytir Hugh Jackman sér í Wolverine Stefán Árni Pálsson skrifar 25. mars 2017 14:00 Jackman hefur verið rosalegur í myndunum.
Logan er nýjasta myndin um teiknimyndasögupersónuna Wolverine úr X-Men en Hugh Jackman, Boyd Holbrook og Doris Morgado fara með aðalhlutverkin í kvikmyndinni. Þetta er síðasta kvikmyndin sem Hugh Jackman leikur Wolverine en hann hefur farið með þetta hlutverk í 17 ár. Jackman þurfti heldur betur að hafa fyrir því að koma sér í rétt líkamlegt atgervi fyrir kvikmyndina og lagði hann sig allan fram, bæði í ræktinni og þá sérstaklega í matarræðinu. Leikarinn léttist um tíu kíló fyrir kvikmyndina og hefur hann aldrei litið betur út. Hann hefur í raun þurft að vera í toppformi frá árinu 1999 þegar hann byrjaði að fara með hlutverk Wolverine. Hann mætir alltaf sex daga vikunnar í ræktinni og þá alltaf tvisvar sinnum á dag. Jackman tekur ávallt ákveðna rispu fyrir hverja mynd og lyfti aðeins mjög þungu fyrstu þrjá vikurnar í átakinu. Á fjórðu vikunni fer hann að lyfta töluvert léttara, en mun fleiri endurtekningar. Þetta hefur það í för með sér að vöðvarnir á honum stækka hraðar. Hann segir að ef maður borðar ekki rétt með líkamsræktinni geti maður alveg eins sleppt þessu öllu saman. „Ég borða mjög mikið, en ég borða rétt. Stundum verð ég að pína ofan í mig einn bita í einu, í raun svolítið eins og að vera í ræktinni,“ segir Jackman. Hann borðar sex þúsund kaloríur á dag þegar hann er að breyta líkama sínum í Wolverine. Hann segist hafa hringt í Dwayne Johnson, the Rock, og fengið ráðleggingar frá honum. Hann borðar aðeins mat sem inniheldur margar kaloríur en mjög lítið af kolvetnum. Hér að neðan má sjá tvö myndbönd sem sýna hvernig leikarinn kemur sér í form fyrir kvikmynd.
Mest lesið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið Klæddu sig upp sem frambjóðendur Lífið „Ef við erum lausnamiðuð þá sköpum við tækifærin“ Lífið Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið Davíð Helgason og Isabella eignuðust dreng Lífið Krakkatían: Forsetaefni, Disney og tónlist Lífið Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið Fleiri fréttir Davíð Helgason og Isabella eignuðust dreng „Ef við erum lausnamiðuð þá sköpum við tækifærin“ Krakkatían: Forsetaefni, Disney og tónlist Klæddu sig upp sem frambjóðendur Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Ofboðslega stolt af dóttur sinni Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór „Nú er þessi sprettur á enda“ Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Fréttatía vikunnar: Kosningar, eldgos og meistarar Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Kjúklinganaggar hollu stjúpunnar Innipúkinn farinn að taka á sig mynd Sigga á Grund er fyrsti heiðursborgari Flóahrepps Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Þetta höfðu netverjar að segja um kappræðurnar Ellefu eftirtektarverð eldhús Forsetaáskorunin: Grefur upp gamlar gersemar úti um allan heim. Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Skrifuðu bók um Sólrúnu Öldu og brunann í Mávahlíð Nafn konunnar flúrað á það allra heilagasta Annar bakaradrengur í ofninum Sjáðu svartþrestina yfirgefa hreiðrið Af vængjum fram: Eins og í bíómynd þegar þau byrjuðu loksins saman Forsetaáskorunin: Áhugatöframaður og hefur safnað skeljum og eldspýtustokkum Kosningavökumolar Höllu og Bjössa Millie Bobby og Bon Jovi yngri í hnapphelduna Sjá meira