Glamour

Bella Hadid opnar sig um sambandsslitin við The Weeknd

Ritstjórn skrifar
Bella Hadid og The Weeknd stuttu eftir að þau hættu saman.
Bella Hadid og The Weeknd stuttu eftir að þau hættu saman. Vísir/Getty
Í nýju viðtali við tímaritið Teen Vogue segir Bella Hadid frá sambandssliti sínu og söngvarans The Weeknd. Hún segir að það hafi tekið mjög mikið á sig og það geri enn enda var þetta í raun fyrstu sambandsslitin hennar. 

Þrátt fyrir að hún hafi litið út fyrir að vera í fínu lagi stuttu eftir að þau hættu saman, sem var í nóvember á seinasta ári, þá hafi verið erfitt að vera stöðugt í sviðsljósinu á þessum erfiða tíma. Þetta hafi vegið þungt að henni og hún var stanslaust að hugsa um hann. „Ástin særir en maður verður að komast í gegnum það,“ segir Bella. 

Ekki er vitað hvort að viðtalið var tekið fyrir eða eftir að ljósmyndir birtust af The Weeknd og Selena Gomez að eiga rómantískt stefnumót í Los Angeles í janúar. Eitt er víst að Bella er sterk kona sem hefur náð að koma sér vel úr erfiðum aðstæðum. 






×