Segja fjölda greininga staðfesta tilvist kynbundins launamuns Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. febrúar 2017 20:57 Velferðarráðuneytið. velferðarráðuneytið
Fjöldi launakannana og rannsókna liðinna ára og áratuga staðfesta að karlar og konur njóta ekki sömu launa fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf. Launamunur sem ekki verður skýrður með öðru en kynferði er staðreynd hér á landi, þótt deilt sé um hve munurinn er mikill. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu.Í tilkynningunni segir jafnframt að Fjölmargar kannanir og rannsóknir hafa verið gerðar á kynbundnum launamun hér á landi á undanförnum árum og áratugum sem allar eiga sammerkt að mæla slíkan mun konum í óhag, þótt hann sé mismikill eftir könnunum. Er þá átt við þann launamun sem eftir stendur óútskýrður þegar tekið hefur verið tillit til allra málefnalegra ástæðna sem skýrt geta mun á launum, s.s. starfshlutfalls, fjölda vinnustunda, vinnutíma, menntunar, mannaforráða o.s.frv. Þá kemur fram að launarannsókn Hagstofu Íslands (árið 2015) sýnir að þegar borin eru saman regluleg laun karla og kvenna, þ.e. laun fyrir dagvinnu, hafa karlar að jafnaði 17,4% hærri laun að meðaltali en konur. Í þessum samanburði er ekki leiðrétt fyrir launamun sem skýra má með málefnalegum breytum, s.s. menntun og mannaforráðum o.fl. Þegar horft er til heildarlauna mælist munurinn enn meiri, eða 21,5% körlum í vil. Athygli vekur að óleiðréttur launamunur eykst með aldri. Einnig kemur fram að fleiri konur en karlar eru með háskólapróf en karlar hafa mannaforráð í meira mæli. Í aldurshópnum 18–27 ára á almennum markaði voru karlar með 5% hærri laun en konur, en munurinn var aftur á móti orðinn 23% í aldurshópnum 58–67 ára. Konur á opinbera markaðnum í aldurshópnum 18–27 ára voru með 3% hærri laun en karlar í sömu stöðu, en launamunurinn var hins vegar 22% körlum í vil í elsta aldurshópnum. Jafnt íslenskar og aðrar norrænar rannsóknir leiða í ljós að kynskiptur vinnumarkaður er ein helsta skýringin á launamun karla og kvenna, þar sem hefðbundin kvennastörf eru lægra launuð en hefðbundin karlastörf og þar sem karlar eru líklegri til að fara ofar í valdastiga atvinnulífisins en konur.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Sjá meira