Farið fram á gæsluvarðhald yfir skipverjunum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 19. janúar 2017 11:11 Annar maðurinn leiddur fyrir dómara. Vísir/anton brink
Uppfært klukkan 12:29: Héraðsdómur Reykjaness hefur úrskurðað annan skipverjann í tveggja vikna langt gæsluvarðhald en lögreglan fór fram á fjögurra vikna varðhald. Lögreglan hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Hinn skipverjinn er nú fyrir dómara. Tveir skipverjar á Polar Nanoq, sem grunaðir eru um aðild að hvarfi Birnu Brjánsdóttur, sem saknað hefur verið frá því á laugardag, verða færðir fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness í hádeginu í dag þar sem krafist verður gæsluvarðhalds yfir þeim. Ekki liggur fyrir hvenær farið verður fram á gæsluvarðhald yfir þriðja skipverjanum. Mennirnir tveir voru fluttir með lögreglubíl frá lögreglustöðinni á Hverfisgötu áleiðis í Hafnarfjörð á ellefta tímanum í dag. Þeir voru handteknir í hádeginu í gær og frá þeim tíma má lögregla halda þeim í sólarhring án gæsluvarðhaldsúrskurðar. Sá frestur rennur út í hádeginu í dag. Lögreglubíll mætti með mennina tvo í héraðsdóm um klukkan ellefu í morgun og var farið með annan manninn fyrir dómara klukkan 11:30. Í framhaldinu verður farið fram á gæsluvarðhald yfir hinum klukkan 12. Mennirnir þrír voru yfirheyrðir í alla nótt og þá lauk rannsókn um borð í skipinu snemma í morgun. Þriðji maðurinn var handtekinn á níunda tímanum í gærkvöld og getur lögregla því haldið honum til sama tíma í kvöld áður en fara þarf fram á gæsluvarðhald yfir honum.Frétt síðast uppfærð klukkan 12:29.
Birna Brjánsdóttir Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira