Hagnaður Vodafone minnkaði um 22% Hörður Ægisson skrifar 16. febrúar 2017 08:00 Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, segist búast við betri afkomu árið 2017.
Hagnaður Vodafone nam 1.007 milljónum króna á árinu 2016 og dróst saman um 22 prósent frá fyrra ári. Þá lækkuðu heildartekjur fjarskiptafyrirtækisins um eitt prósent á milli ára og voru samtals 13.655 milljónir. EBITDA-hagnaður félagsins – afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta – nam 3.060 milljónum á síðasta ári og dróst saman um sex prósent. Þetta kom fram í afkomutilkynningu sem Vodafone sendi frá sér í gær en þar segir að EBITDA-afkomuspá félagsins fyrir árið 2017 sé hækkuð á ný og er áætluð um 3.250 milljónir. Í tilkynningu er haft eftir Stefáni Sigurðssyni, forstjóra Vodafone, að árið 2016 hafi að mörgu leyti verið „sérstakt ár í rekstri Fjarskipta hf. þar sem margt fór saman; miklar launahækkanir í tengslum við kjarasamninga, einskiptiskostnaður vegna húsnæðismála, hagræðingaraðgerða og vinnu sérfræðinga við áreiðanleikakönnun vegna hugsanlegra kaupa á 365 miðlum hf. Á sama tíma höfðu markaðsaðstæður neikvæð áhrif á meðaltekjur af viðskiptavinum. Mótvægisaðgerðir gengu vel þar sem vöxtur í fjölda viðskiptavina hefur ekki verið meiri í seinni tíð eða 7%. Sjónvarpsvörur félagsins skiluðu mikilli aukningu í tekjum sem unnu á móti fyrrgreindum neikvæðum þáttum þrátt fyrir lækkun tekna í heildsöludreifingu sjónvarps. Horfur í rekstri félagsins fyrir árið 2017 eru betri, þar sem ætla má að hagræðingaraðgerðir árið 2016 og vöxtur viðskiptavina skili sér í betri rekstri árið 2017.“ Stefán segir að enn sé unnið að gerð kaupsamnings vegna fyrirhugaðra kaupa á ljósvaka- og fjarskiptahluta 365 miðla og eru bundnar vonir við að sú vinna klárist fyrir lok fyrsta ársfjórðungs.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Vélfagi synjað um frekari undanþágur frá þvingunaraðgerðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Sjá meira