Óljóst hvernig ný höfn snýr við taprekstri Granda á Akranesi Svavar Hávarðsson og Sveinn Arnarsson skrifa 31. mars 2017 06:00 Erfiður tími fer nú í hönd hjá landvinnslufólki á Akranesi enda varað við bjartsýni. 93 eiga á hættu að vera sagt upp. vísir/eyþór
Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, svarar því ekki hvernig uppbygging nýrrar hafnaraðstöðu á Akranesi muni breyta því að taprekstur er af landvinnslu fyrirtækisins á staðnum – sem eru helstu rök fyrirtækisins fyrir því að leggja hana niður. Fyrr fengust ekki svör við því hversu mikið tapið af rekstri landvinnslunnar er. Vilhjálmur segir það ekki breyta því að fyrirtækið sé tilbúið til að setjast niður með bæjaryfirvöldum og Faxaflóahöfnum á grundvelli tillögu bæjaryfirvalda sem kynnt var eftir að HB Grandi gaf það út að til stæði að leggja landvinnsluna niður þar sem 93 starfsmenn fyrirtækisins starfa í dag.Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda„Ég get ekki svarað þeirri spurningu eins og staðan er núna. Ég er búinn að samþykkja að fara í samræður við Akraneskaupstað. Ef ég hefði séð lausn á málinu, þá væri ég búinn að eiga samræður við Akraneskaupstað um það,“ segir Vilhjálmur aðspurður hverju HB Grandi yrði bættari með betri hafnaraðstöðu og bætir við: „Það er ekki auðvelt að standa í því að segja upp 93 einstaklingum á Akranesi og maður gerir sér það ekki að leik.“ Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær sagði Vilhjálmur að Skagamenn ættu ekki að gera sér miklar vonir um að samræður fyrirtækisins við bæjaryfirvöld og Faxaflóahafnir myndu skila árangri. Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, spurður að því hvort það væri ekki hrein örvænting að verja miklum fjármunum í þessa framkvæmd, segir að hafa beri í huga að það sé ekki bærinn sem sé að fara í þessa framkvæmd heldur Faxaflóahafnir. „Það hefur verið stefna Faxaflóahafna að bæta aðstöðuna á Akranesi. Ég tel þessum fjármunum í bætta hafnaraðstöðu á Akranesi vel varið, og að hún verði arðbær ekki aðeins fyrir bæjarfélagið heldur einnig HB Granda og Faxaflóahafnir.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum Sjá meira