Orri Hauksson var fangavörður í Kvennafangelsinu Sæunn Gísladóttir skrifar 18. febrúar 2016 10:38 Orri Hauksson er forstjóri Símans.
Orri Hauksson, forstjóri Símans, var fangavörður í Kvennafangelsinu í Kópavogi, Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptráðs, vann í fiskvinnslu í Bolungarvík, og Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, bar út öll helstu blöð landsins fyrir fimmtán ára afmælið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein Ólafs Bielawski, Ferilskrá, sem birtist í Háskólablaðinu Hróðri sem kom út í dag. Í greininni ræðir Ólafur auk þeirra við Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, um fyrstu skrefin á vinnumarkaði. Þetta fólk sem er áberandi í íslensku atvinnulífi hefur komið víða við á ferlinum.Birna Einarsdóttir hóf starfsferilinn fyrir 45 árum.Vísir/ErnirStarfsferill Birnu hófst á sveitabýlinu Skarði í Landsveit fyrir um 45 árum. Þangað fór hún í sveit tíu ára gömul og dvaldi öll sumur til tvítugs. Hún sinnti þar barnapössun og heimilisstörfum á bænum. Birna sinnti einnig verslunarstörfum meðfram námi sínu við Verzlunarskóla Íslands. Hún vann meðal annars í verslun frænda síns Stapafelli í Keflavík í jólatörninni. Orri Hauksson, forstjóri Símans, fór líka í sveit á sumrin og líkt og Ari Kristinn bar hann út blöð. Þegar hann var fjórtán ára gamall fór hann að vinna við ávaxtasölu og seldi fullann vagn af ávöxtum og grænmeti í miðbæ Reykjavíkur hvernig sem viðraði. Ævintýramennskan var mikil í Orra sem að réð sig sautján ára á fragtskip hjá útgerðinni Víkurskipum og sigldi með farm til Portúgal. Katrín Olga hélt til Bolgunarvíkur í fiskvinnslu þegar hún var nítján ára.Vísir/ErnirÞegar Orri var 21 árs fór hann í sumstarf sem fangavörður í Kvennafangelsinu í Kópavogi. Báðir kvenfangar landsins voru vistaðir þar og fyllt var upp í laus pláss með karlföngum. Eftir að hafa unnið sem barnfóstra og verið í sveit vann Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptráðs, í sjoppu þar til hún kláraði grunnskóla. Þegar hún hóf nám við Fjölbrautarskólann í Breiðholti sótti hún um hlutastarf við skúringar samhliða náminu og hélt í það á háskólaárunum. Það var svo þegar hún var nítján ára að hún hélt til Bolungarvíkur í fiskvinnslu ásamt systur sinni, en þar kynntist hún einmitt eiginmanni sínum.Ari Kristinn Jónsson er í dag rektor HR.Mynd/aðsendEftir að hafa borið út blöð frá tíu til fimmtán ára aldri réð Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, sig í hefðbundna sumarvinnu hjá Reykjavíkurborg ásamt félaga sínum. Þeir byrjuðu í götuvinnuflokki við hellulagnir og viðgerðir á stéttum. Ari hefur alltaf haft mikinn áhuga á tölvum og fékk strax á sautjánda ári sumarvinnu hjá Raunvísindastofnun við tölvuþjónustu. Ari endaði með því að ljúka doktorsgráðu 28 ára og fékk vinnu hjá NASA að því loknu. Meira má lesa um skrautlegan starfsferil þessara einstaklinga hér fyrir neðan á blaðsíðu sextíu.
Tengdar fréttir Katrín Olga kjörin formaður Viðskiptaráðs Katrín Olga Jóhannesdóttir var kjörin formaður Viðskiptaráðs Íslands 2016-2018. Úrslitin voru kynnt á aðalfundi Viðskiptaráðs sem fram fór í morgun. Katrín Olga var ein í framboði. 11. febrúar 2016 10:30 Birna Einarsdóttir hlaut FKA viðurkenninguna 2016 FKA heiðraði þrjár athafnakonur í Hörpu. 28. janúar 2016 18:29 Mest lesið Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Viðskipti innlent Origo kaupir Maven Viðskipti innlent Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Viðskipti innlent Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Viðskipti innlent Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Viðskipti innlent Hvað á að gera við fermingarpeningana? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Sjá meira
Katrín Olga kjörin formaður Viðskiptaráðs Katrín Olga Jóhannesdóttir var kjörin formaður Viðskiptaráðs Íslands 2016-2018. Úrslitin voru kynnt á aðalfundi Viðskiptaráðs sem fram fór í morgun. Katrín Olga var ein í framboði. 11. febrúar 2016 10:30
Birna Einarsdóttir hlaut FKA viðurkenninguna 2016 FKA heiðraði þrjár athafnakonur í Hörpu. 28. janúar 2016 18:29