Ríkið sýknað af kröfum um endurgreiðslu á snakktolli Birgir Olgeirsson skrifar 18. febrúar 2016 16:27 Hagar, Aðföng, Inness og Ölgerðarin stefndu íslenska ríkinu. Vísir/Valli/Pjetur
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem íslenska ríkið var sýknað af kröfu fyrirtækjanna Haga, Aðfanga, Inness og Ölgerðarinnar um að fá endurgreiðslu á 59 prósenta tolls á innfluttu kartöflusnakki. Þessi tollur verður hins vegar afnuminn um næstu áramót samkvæmt ákvörðun Alþingis í desember. Dómurinn hefur ekki verið birtur á vef Hæstaréttar en félag atvinnurekenda segir frá niðurstöðunni á vef sínum. Alls fór Ölgerðin fram á tæplega 225 milljón króna greiðslu frá ríkinu. Innnes fór fram á rúmar 54 milljónir og Hagar og Aðföng fóru fram á meira en 32 milljónir króna.Sjá einnig: Snakktollur ríkisins ekki ólöglegur Fyrirtækin sögðu meðal annars að tollur þessi samræmdist ekki kröfu um málefnalegan grundvöll skattheimtu hins opinbera. Fyrirtækin töldu að álagning þessi hafi verið byggð á svokallaðri verndarstefnu stjórnvalda gagnvart innlendum landbúnaði. Félag atvinnurekenda segir íslenska ríkið hafa haldið því fram fyrir dómi að tollurinn væri ætlaður til almennrar tekjuöflunar, en væri ekki verndartollur fyrir innlenda framleiðslu. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir málið allt hið ótrúlegasta. „Eftir 20 ára gjaldtöku kannast ríkið allt í einu ekki við að þetta sé verndartollur. Ríkið segist vera að afla sér tekna með almennum hætti og að það sé bara tilviljun að himinhár tollur upp á 59% lenti á einni einstakri vöru,“ er haft eftir Ólafi á vef félagsins. Hann segir ljóst að þessi tollur verndi engan íslenskan landbúna og að engar kartöflur, innlendar eða innfluttar, séu í íslensku snakki. „Þetta er augljóslega ekki almenn gjaldtaka og henni er augljóslega ætlað að vernda innlenda verksmiðjuframleiðslu, undir yfirskini tollverndar fyrir búvöruframleiðslu. Það er erfitt að sætta sig við þá niðurstöðu Hæstaréttar að þetta sé í lagi.“
Mest lesið Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Thule lækkar í prósentu Neytendur Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Fleiri fréttir Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Sjá meira