Sigurbjörn Árni uppskar hnefahögg fyrir veitta aðstoð sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 15. apríl 2016 15:11 „Ég er aumur og marinn bak við vinstra eyrað. Hann sló einu höggi aftan við vinstra eyrað, efst á hálsinum,“ segir Sigurbjörn. vísir/
Sigurbjörn Árni Arngrímsson, skólameistari í Framhaldsskólanum á Laugum í Þingeyjarsýslu og sérfræðingur Íslands í frjálsum íþróttum, hefur kært pilt á tvítugsaldri til lögreglu fyrir líkamsárás á heimavist skólans á dögunum. Pilturinn er kærasti stúlku sem var í skólanum. DV greindi fyrst frá.Slær ekki stúlkur og sló því skólameistarann Forsaga málsins er sú að stúlkan, fyrrverandi nemandi í skólanum, kom á heimavistina til þess að sækja eigur sem hún hafði skilið eftir þar. Taldi stúlkan að hún ætti einhverja muni inni í herbergi hjá einum nemanda skólans og leitaði því til Sigurbjörns, sem hafði samband við þann nemanda, og fékk leyfi til þess að sækja hlutina. Sigurbjörn fór með stúlkunni, og kærasta hennar, á heimavistina. Í kjölfarið kom til orðaskaks á milli stúlknanna tveggja. „Það kom til einhverra hnippinga þarna á milli stúlknanna, og þá kom strákurinn og sló mig. Hann vildi meina það að önnur stúlkan hefði veist eitthvað að honum, og þar sem hann slægi ekki stúlkur og ég bæri ábyrgð á þessu, þá tæki hann högg á mig í staðinn fyrir það högg sem hann fékk, sagði hann mér,“ segir Sigurbjörn í samtali við Vísi, en hann sakaði ekki alvarlega.Aumur og marinn „Þetta var minniháttar. Ég er aumur og marinn bak við vinstra eyrað. Hann sló einu höggi aftan við vinstra eyrað, efst á hálsinum,“ Hann segir að pilturinn hafi líklega reiknað með að til einhverra rifrilda kæmi á milli stelpnanna. „Mér skilst að hann hafi sagt einhverja sögu um aðra stúlkuna, sem hún vildi meina að væri ósönn. Eflaust var hún reið yfir því og fannst hann vera að bera út lygasögur um sig. Réttlætiskenndin er mjög sterk í þessum krökkum og ætli hún hafi ekki ýtt eitthvað við honum eða slegið hann, en ég sá það ekki sjálfur.“ Sigurbjörn segist hafa látið höggið lítið á sig fá. „Ég hélt bara áfram að fara með þeim í gegnum sameiginlegt geymslurými og fór alveg með stráknum þangað,“ segir hann. Aðspurður hvort sér hafi ekki brugðið við höggið jánkar hann því. „Maður á aldrei von á þessu. Strákurinn var ekkert nálægt mér þarna, þannig að ég reiknaði ekki með þessu á þessum tímapunkti. Ég held hann hafi bara verið að sýna það að hann stæði á rétti sínum, stæði við það sem hann segði.“ Málið hefur verið kært til lögreglu, að sögn Sigurbjörns. „Ég hef kært þetta til lögreglu. Ég kannaði verklagsreglur og þær eru þannig að litið er á svona lagað sem árás á embættið, ekki persónuna sjálfa.“
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Sjá meira