Tíska og hönnun

Langar að líta út eins og 2007-hnakki

Guðný Hrönn Antonsdóttir skrifar
Jóhann Kristófer Stefánsson er kominn í JÖR-teymið. Mynd/Egill Ástráðsson 
Jóhann Kristófer Stefánsson er kominn í JÖR-teymið. Mynd/Egill Ástráðsson 
Jóhann Kristófer Stefánsson tók nýverið við sem yfirhönnuður hjá fatamerkinu JÖR ásamt fatahönnuðinum Steinunni Eyju Halldórsdóttur. Jóhann er þó ekki menntaður fatahönnuður heldur er hann sviðshöfundur sem er góður grunnur fyrir fyrir alla sköpun að hans mati.

Spurður hvernig hann fékk starfið sem yfirhönnuður JÖR segist Jóhann hafa þekkt Guðmund Jörundsson, eiganda JÖR, í langan tíma og unnið með honum í gegnum tíðina. „Ég er búinn að þekkja Gumma lengi, frá því að við vorum í barnaskóla. Svo sátum við Logi Pedro og Sigbjartur Sturla fyrir hjá honum þegar hann var að vinna í Kormáki og Skildi. Við vorum þá í fermingarbæklingnum, þegar við vorum sem sagt árinu eldri en fermingarbörn eru. Svo kom ég inn í JÖR sem fyrirsæta árið 2013 og gekk þá tískupallinn á RFF,“ útskýrir Jóhann sem er nýútskrifaður frá Listaháskóla Íslands af sviðshöfundarbraut.

„En það er ekki fyrr en í vor sem við byrjum þetta samtal um að ég kæmi inn í fyrirtækið. Hann bar þá þessa hugmynd undir mig, að ég kæmi inn á einhverjum „creative“-forsendum og mér leist bara vel á það. Svo byrjaði ég að funda með honum í sumar til að ræða framhaldið,“ segir Jóhann sem er spenntur fyrir komandi tímum.

Hans fyrsta verkefni verður að koma nýrri verslun á Skólavörðustíg á koppinn. „Já, svo er planið líka að opna nýja búð á Geirsgötu, í húsakynnum sem Faxaflóahafnir eiga. Svo er stefnan fyrir vorið að hanna nýja línu ásamt Steinunni Eyju og Gumma.“

Er að vinna með Írafár-tískuna

Jóhann sér fram á að með tilkomu hans inn í fyrirtækið muni markhópur verslunarinnar breikka. „Við munum leggja nýjar áherslur en þó halda í stílinn sem hefur alltaf einkennt JÖR. Við sjáum fram á að allir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi hjá JÖR og sömuleiðis eitthvað fyrir hvaða tilefni sem er. JÖR byrjaði sem svona jakkafata-dæmi en hefur síðan þá fært út kvíarnar. Ég hef fulla trú á að JÖR geti verið í forystu í öllu því sem er að gerast í tísku hverju sinni.“

Jakkaföt og skyrtur hafa einkennt vöruúrvalið í JÖR undanfarið.Vísir/Anton Brink
Jóhann er sjálfur afar hrifinn af vinnufatnaði og „street-wear“. „Ég er ekkert mikið í jakkafötum sko, þó að mér finnist alveg gaman að fara í jakkaföt endrum og eins. Ég er meiri svona hettupeysugaur sko,“ segir Jóhann klæddur í rifnar gallabuxur og hettupeysu. „Stíllinn minn núna er bara þannig að mig langar að vera ógeðslegur. Mig langar bara að vera í ljótum fötum og ég hef mikið verið að reyna að líta út eins og 2007-hnakki. Ég myndi segja að mig langar að „lúkka“ eins og ég sé í Írafár árið 2007.“

Finnur ekki fyrir stressi

Eins og áður sagði er Jóhann útskrifaður sviðshöfundur frá LHÍ. Hann segir það nám nýtast sér á öllum skapandi sviðum. „Það nám kenndi mér að skilgreina mína listrænu sýn og hún nær einhvern veginn yfir allar skapandi greinar. Mín listræna sýn er alveg óháð einhverju einu fagi,“ segir Jóhann sem sá þó ekki í upphafi fyrir sér að fara út í fatahönnun. „Nei, en áhugi minn á fatnaði hefur verið að aukast með árunum og ég hef verið að vinna að fleiri verkefnum sem tengjast fatnaði, þannig að mér finnst þetta alveg rökrétt þróun.“

„Nei, ekki neitt sko,“ svarar Jóhann spurður hvort hann finni fyrir einhverju stressi í tengslum við nýja starfið. „Ég reyni að taka sjálfan mig ekki of alvarlega. Þá þýðir ekkert að vera stressaður.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×