Langar að líta út eins og 2007-hnakki Guðný Hrönn Antonsdóttir skrifar 12. desember 2016 13:00 Jóhann Kristófer Stefánsson er kominn í JÖR-teymið. Mynd/Egill Ástráðsson
Jóhann Kristófer Stefánsson tók nýverið við sem yfirhönnuður hjá fatamerkinu JÖR ásamt fatahönnuðinum Steinunni Eyju Halldórsdóttur. Jóhann er þó ekki menntaður fatahönnuður heldur er hann sviðshöfundur sem er góður grunnur fyrir fyrir alla sköpun að hans mati. Spurður hvernig hann fékk starfið sem yfirhönnuður JÖR segist Jóhann hafa þekkt Guðmund Jörundsson, eiganda JÖR, í langan tíma og unnið með honum í gegnum tíðina. „Ég er búinn að þekkja Gumma lengi, frá því að við vorum í barnaskóla. Svo sátum við Logi Pedro og Sigbjartur Sturla fyrir hjá honum þegar hann var að vinna í Kormáki og Skildi. Við vorum þá í fermingarbæklingnum, þegar við vorum sem sagt árinu eldri en fermingarbörn eru. Svo kom ég inn í JÖR sem fyrirsæta árið 2013 og gekk þá tískupallinn á RFF,“ útskýrir Jóhann sem er nýútskrifaður frá Listaháskóla Íslands af sviðshöfundarbraut. „En það er ekki fyrr en í vor sem við byrjum þetta samtal um að ég kæmi inn í fyrirtækið. Hann bar þá þessa hugmynd undir mig, að ég kæmi inn á einhverjum „creative“-forsendum og mér leist bara vel á það. Svo byrjaði ég að funda með honum í sumar til að ræða framhaldið,“ segir Jóhann sem er spenntur fyrir komandi tímum. Hans fyrsta verkefni verður að koma nýrri verslun á Skólavörðustíg á koppinn. „Já, svo er planið líka að opna nýja búð á Geirsgötu, í húsakynnum sem Faxaflóahafnir eiga. Svo er stefnan fyrir vorið að hanna nýja línu ásamt Steinunni Eyju og Gumma.“Er að vinna með Írafár-tískunaJóhann sér fram á að með tilkomu hans inn í fyrirtækið muni markhópur verslunarinnar breikka. „Við munum leggja nýjar áherslur en þó halda í stílinn sem hefur alltaf einkennt JÖR. Við sjáum fram á að allir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi hjá JÖR og sömuleiðis eitthvað fyrir hvaða tilefni sem er. JÖR byrjaði sem svona jakkafata-dæmi en hefur síðan þá fært út kvíarnar. Ég hef fulla trú á að JÖR geti verið í forystu í öllu því sem er að gerast í tísku hverju sinni.“Jakkaföt og skyrtur hafa einkennt vöruúrvalið í JÖR undanfarið.Vísir/Anton BrinkJóhann er sjálfur afar hrifinn af vinnufatnaði og „street-wear“. „Ég er ekkert mikið í jakkafötum sko, þó að mér finnist alveg gaman að fara í jakkaföt endrum og eins. Ég er meiri svona hettupeysugaur sko,“ segir Jóhann klæddur í rifnar gallabuxur og hettupeysu. „Stíllinn minn núna er bara þannig að mig langar að vera ógeðslegur. Mig langar bara að vera í ljótum fötum og ég hef mikið verið að reyna að líta út eins og 2007-hnakki. Ég myndi segja að mig langar að „lúkka“ eins og ég sé í Írafár árið 2007.“Finnur ekki fyrir stressiEins og áður sagði er Jóhann útskrifaður sviðshöfundur frá LHÍ. Hann segir það nám nýtast sér á öllum skapandi sviðum. „Það nám kenndi mér að skilgreina mína listrænu sýn og hún nær einhvern veginn yfir allar skapandi greinar. Mín listræna sýn er alveg óháð einhverju einu fagi,“ segir Jóhann sem sá þó ekki í upphafi fyrir sér að fara út í fatahönnun. „Nei, en áhugi minn á fatnaði hefur verið að aukast með árunum og ég hef verið að vinna að fleiri verkefnum sem tengjast fatnaði, þannig að mér finnst þetta alveg rökrétt þróun.“ „Nei, ekki neitt sko,“ svarar Jóhann spurður hvort hann finni fyrir einhverju stressi í tengslum við nýja starfið. „Ég reyni að taka sjálfan mig ekki of alvarlega. Þá þýðir ekkert að vera stressaður.“
Tíska og hönnun Mest lesið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Lífið Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Lífið Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Lífið Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Lífið Andri og Erla selja í Seljunum Lífið „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Lífið Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Tónlist Fleiri fréttir Alltaf með jager skot í töskunni Fá í fyrsta sinn að klæðast strigaskóm „Þegar manni líður vel í eigin skinni skín það í gegn“ „Stútfull og við það að springa en hefur aldrei klikkað“ 23 ára og með sína eigin förðunarlínu Laufey skein skært á Met Gala Best klæddu stjörnurnar á Met Gala „Elska hraðann, pressuna og stressið“ Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Alltaf með naglaþjöl en gleymir stundum lyklunum Innsýn í fatahönnun framtíðarinnar Lófaklapp og litagleði á tískusýningu útskriftarnema Strangheiðarleg dreifbýlistútta og lopapeysan í uppáhaldi „Elska að hafa skipulagt kaos“ „Spyr mig oft hvort öll þessi vinna sé þess virði“ Listræn súkkulaðiupplifun og girnilegt smakk Menningarlífið iðar og HönnunarMars hefst á morgun Hefur hannað fyrir Miley Cyrus og Erykah Badu Íslensk skartgripahönnun á besta stað í New York Starfaði fyrir pólska herinn og sýnir nú skartgripi á Garðatorgi Kemur beint frá París með vistvæna tískustrauma „Frá naglalakki hjá ömmu í iðnaðarmann í skítugum fötum“ Myndavél frá afa algjör fjársjóður „Það mikilvægasta er að vera trúr sjálfum sér“ Munnskolið mikilvægt í förðunarstarfinu „Sjálfstraustið er besti fylgihluturinn“ Sjá meira