Grunaður um nauðgun og gróft ofbeldi gegn sambýliskonu sinni Bjarki Ármannsson skrifar 8. mars 2016 20:17 Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða gæsluvarðhald sterklega grunaður um að hafa beitt sambýliskonu sína hrottalegu ofbeldi og nauðgað henni. Vísir
Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða gæsluvarðhald sterklega grunaður um að hafa beitt sambýliskonu sína hrottalegu ofbeldi og nauðgað henni þann 5. febrúar síðastliðinn. Maðurinn á að hafa haldið konunni nauðugri í íbúð þeirra í rúmlega fjórar klukkustundir og beitt hana ofbeldi þannig að hún hlaut meðal annars mar á höfði og eymsli víða um líkamann auk þess sem ein tönn hennar brotnaði. Lýsingarnar á meintu ofbeldi mannsins eins og þær birtast í gæsluvarðhaldsúrskurðinum eru í meira lagi grófar og óhugnanlegar. Í fyrsta lagi á maðurinn að hafa slegið konuna ítrekað hnefahöggum í síðuna og höfuðið, rifið í hár hennar, tekið hana hálstaki og sparkað ítrekað í síðu hennar og fætur þar sem hún lá á gólfinu. Einnig á að hann að hafa ítrekað skipað henni að setjast á stól og sparkað svo í stólinn þannig að hún féll um leið í gólfið. Í öðru lagi á hann að hafa ítrekað hótað henni lífláti á meðan þessu stóð og meinað henni útgöngu úr íbúðinni með því að rífa í hárið á henni og slá hana hnefahöggum er hún reyndi að flýja. Að lokum er manninum gert að sök að hafa nauðgað konunni. Hann hafi skipað henni að girða niður um sig og í kjölfarið tekið myndir af rassi hennar og kynfærum gegn vilja hennar auk þess að skoða kynfæri hennar með vasaljósi. Hann hafi svo þvingað hana til munnmaka og endaþarmsmaka. Rannsókn þessara meintu brota er lokið fyrir utan það að beðið er áverkavottorðs frá tannlækni konunnar. Í gögnum málsins er að finna framburð vitna, vottorð frá neyðarmóttöku, ljósmyndir og fjarsamskipta og samskipta á Facebook sem héraðssaksóknari telur styðja við framburð konunnar. Konan hefur jafnframt gefið skýrslu hjá lögreglu um að maðurinn og faðir hans hafi ítrekað reynt að hafa áhrif á framburð hennar eftir að málið kom upp. Í gæsluvarðhaldsúrskurðinum kemur fram að maðurinn neiti sök og hafi gefið skýringar á því hvernig áverkar konunnar komu til. Héraðssaksóknari meti þær skýringar þó ótrúverðugar. Meint brot hans geta varðað allt að sextán ára fangelsi, en hann er meðal annars úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna.
Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira