Landvernd nýtti ekki færi til mótmæla Garðar Örn Úlfarsson skrifar 4. maí 2016 07:00 Páll Gíslason segir Fannborg hafa selt gistingu í uppbúnum rúmum í tveggja manna herbergjum í tíu ár. Mynd/Batteríið Arkitektar
Arineldur á að gleðja gesti Hótels Kerlingarfjalla. Mynd/Batteríið Páll Gíslason, framkvæmdastjóri Fannborgar ehf., sem byggir nú hótel í Kerlingarfjöllum, segir ekki hægt að sjá að Landverndarmenn skilji eðli umhverfismats. „Um þá vinnu gilda lög og þar er skýrt tekið fram í fyrstu grein að umhverfismati sé ætlað að meta áhrif framkvæmdar á gefna umhverfisþætti og þörf á mótvægisaðgerðum framkvæmda, ekki að framkvæmdin sem slík sé til umræðu eða mats,“ segir Páll sem er ósáttur við kærur Landverndar vegna byggingar 120 herbergja hótels Fannborgar í Kerlingarfjöllum. Er hótelið verður fullbyggt býður Fannborg 342 gistirými á staðnum. Landvernd kærði Skipulagsstofnun í fyrrasumar fyrir að heimila byggingu fyrsta áfanga af þremur við hótelið án undangengins umhverfismats. Samtökin kærðu síðan Hrunamannahrepp í mars á þessu ári fyrir að gefa út byggingarleyfi fyrir hótelinu. Krafa var gerð um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða en úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála á eftir að úrskurða.Páll Gíslason, framkvæmdastjóri Fannborgar ehf. „Formaður Landverndar segir að á þeim bæ hafi mönnum ekki verið ljóst fyrr en í febrúar á þessu ári að framkvæmdir voru hafnar. Við bendum á að á fundi í ágúst í fyrra gerði ég þeim grein fyrir að framkvæmdir væru hafnar og Landverndarmenn buðu þá að draga kæruna til baka gegn stöðvun framkvæmda,“ segir Páll. Þá vitnar Páll til þeirra orða Snorra Baldurssonar, formanns Landverndar, í Fréttablaðinu 26. apríl síðastliðinn að það hafi verið „bjánalegt“ af Skipulagsstofnun að gefa heimild til að byggja fyrsta áfanga hótelsins án þess að gert yrði umhverfismat því þá væri orðið mjög erfitt að hætta við framkvæmdina. „Á móti vekjum við athygli á því að Landverndarmenn hafa ekki nýtt sér þau tækifæri til mótmæla, sem þessi ferli bjóða upp á,“ segir Páll. Í Fréttablaðinu fyrir átta dögum var sagt frá bókun sveitarstjórnar Hrunamannahrepps um að kæra Landverndar virtist „vera til þess eins fallin að valda sveitarfélaginu og hagsmunaaðilum á svæðinu tjóni“, eins og segir í bókuninni. „Í ljósi þess að seinni kæran er sett fram löngu eftir að Landvernd er ljóst að vinna við umhverfismat er hafin og að hún beinist ekki gegn Skipulagsstofnun, þá er nánast útilokað að halda því fram að henni sé ekki ætlað að valda ónauðsynlegum skaða,“ segir Páll Gíslason. Þessi frétt birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 4.maí
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Sjá meira