Svar barst við fyrirspurn hennar og það frá sjálfri söngkonu sveitarinnar, Skin. Leist henni afbragðs vel á hugmynd Önnu Margrétar.
Leitaði Anna Margrét með færslunni sem hún birti á Facebook eftir viðbrögðum fólks við því hvort að það myndi mæta á tónleikana. Viðbrögðin stóðu ekki á sér en þegar þessi frétt er skrifuð hafa yfir þréttan hundruð manns líkað við færsluna.

„Ég er eiginlega vandræða mikill fan. Ég var þrettan ára þegar ég fór á tónleikana með þeim þegar þau voru hérna seinast.“ Sagði Anna Margrét í samtali við fréttastofu í kvöld.
Hún segist hafa sent skilaboðin í góðu flippi fyrir tveimur mánuðum síðan en þau sendi hún á hljómsveitina í gegnum Facebook síðu þeirra. Svarið sem hún óskaði svo innilega eftir barst henni svo loks í gær.
„Þetta er frábær hugmynd, ég ætla að láta hljómsveitina vita af þessu“ segir í skilaboðunum sem söngkonan Skin skrifaði til Önnu Margrétar.
Tónleikahaldarar hafa haft samband
Í Facebook færslu sinni óskaði Anna Margrét einnig eftir viðbrögðum tónleikarahaldara vegna mögulegrar heimsóknar Skunk Anansie. En hefur einhver haft samband og lýst yfir áhuga á að hýsa tónleikana ?
„Já, það eru nefnilega nokkrir búnir að hafa samband“ segir Anna Margrét en gefur þó ekkert upp um hverjir það eru.
Það verður því gaman að fylgjast með hvort þessi draumur Önnu Margrétar um að hljómsveitin Skunk Anansie stígi á stokk hér á landi eftir 20 ára fjarveru verði að veruleika.
Facebook færslu Önnu Margrétar má sjá hér að neðan.