Frumvarp um opinber innkaup lent í mótbyr Sveinn Arnarsson skrifar 12. febrúar 2016 07:00 Leggja á frumvarp um opinber innkaup fram nú á vorþingi. vísir/ernir
Félag atvinnurekenda, Viðskiptaráð Íslands og Samkeppniseftirlitið leggjast öll harðlega gegn tillögu um að innlendum kaupendum verði heimilt að nota erlend stjórnvöld til að hafa milligöngu um kaup á vöru og þjónustu án þess að sérstakt samkeppnismat fari fram hér á landi. Þetta kemur fram í umsögnum til fjármálaráðuneytisins vegna frumvarps um breytingu á lögum um opinber innkaup. „Viðskiptaráð gerir alvarlegar athugasemdir við afnám svokallaðs samkeppnismats við framkvæmd útboða í gegnum miðlægar innkaupastofnanir í öðrum ríkjum,“ segir í umsögn Viðskiptaráðs. Brýnt sé að halda inni ákvæði um samkeppnismat sem væri rýnt af Samkeppniseftirlitinu hverju sinni.Ólafur Stephensen„Telur ráðið að samkeppnismat sé forsenda þess að innkaupastefna hins opinbera taki tillit til heildaráhrifa útboðs,“ segir Viðskiptaráð. Samkeppniseftirlitið segir lögin í heild fela í sér mjög jákvæð skref í átt að virkari samkeppni en geldur varhug við því að innlent samkeppnismat verði fellt úr nýjum lögum. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra sagði við Fréttablaðið 18. janúar að það væri mikilvægt að breyta lögunum þannig að sameiginleg útboð Norðurlandanna gætu farið fram.Páll Gunnar Pálsson, forstjóri SamkeppniseftirlitsinsLandspítalinn hefur bent á að ríkið gæti sparað mikið ef hægt væri að taka þátt í lyfjaútboði með öðrum þjóðum. „En að svo stöddu hamla lög um opinber innkaup og lagaumhverfi í nágrannalöndunum því að svo geti orðið,“ segir Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Landspítalans. Félag atvinnurekenda hafnar því að ákvæðið um innlent samkeppnismat hamli þátttöku í útboðum með öðrum þjóðum. Ríkisstofnanir hafi undanfarin ár tekið þátt í útboðum með erlendum aðilum þrátt fyrir ákvæðið. Tryggja þurfi innlent samkeppnismat til að tryggja að Samkeppniseftirlitið geti skoðað hvaða afleiðingar útboð með öðrum þjóðum hafi fyrir innlenda samkeppni.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira