Herðubreið er uppáhaldsfjallið Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. febrúar 2016 12:00 Ólafur Darri Andrason
Ólafur Darri Andrason hefur verið skipaður skrifstofustjóri skrifstofu hagmála og fjárlaga í velferðarráðuneytinu. Hann var einn þeirra fjögurra umsækjenda sem sérstök hæfnisnefnd taldi hæfasta til að gegna embættinu. Ólafur Darri er með B.Sc. í hagfræði og meistarapróf í viðskiptafræði með áherslu á fjármál. Hann hefur unnið í rúm þrettán ár hjá Alþýðusambandinu og segir það hafa verið krefjandi og skemmtilegan vettvang. „En eftir dálitla umhugsun þá langaði mig til að breyta til og ég sá spennandi starf.“ Hann segir nýja starfið áskorun en skrifstofa hagmála og fjárlaga haldi utan um fjárveitingar ríkisins til heilbrigðis- og velferðarmála. Ólafur Darri segir að síðustu ár hafi verið mjög spennandi á vettvangi Alþýðusambandsins og margt hafi þróast til betri vegar. Nú standi yfir vinna við að bæta kjarasamningsgerðina og hafi frumkvæðið að þeim breytingum komið frá aðilum vinnumarkaðarins. „Það hefur verið vinna í gangi frá árinu 2013. Þá ákváðum við að skoða hvað við gætum lært af félögum okkar á Norðurlöndunum sem hafa náð að auka kaupmátt meira en við en jafnframt búið við stöðugleika. Í kjölfarið settum við í gang vinnu, þar sem er verið að skoða hvað við getum gert betur í okkar samningsgerð,“ segir Ólafur Darri. Nú sé búið að ganga frá þessu samkomulagi sem menn hafa kallað SALEK-samkomulagið. „Vonandi náum við að bæta kjarasamningsgerðina hjá okkur með það að markmiði að tryggja hagsæld okkar félagsmanna enn betur,“ segir hann. Helsta áhugamál Ólafs Darra utan vinnunnar er útivist. „Ég hef óskaplega gaman af því að vera úti í náttúrunni, ganga á fjöll og fara í löng bakpokaferðalög,“ segir hann. Ólafur Darri segir erfitt að nefna eitt fjall sem uppáhaldsfjall en upp í hugann komi Herðubreið. „Ég gekk á Herðubreið fyrir nokkrum árum í óskaplega fallegu veðri og þá sá maður landið liggja fyrir fótum sér. Það stendur svo stakt, þetta fjall, og maður sér svo víða,“ segir hann. Að auki hefur Ólafur Darri mjög gaman af að hlaupa og það lengsta sem hann hefur hlaupið er Laugavegurinn, en hann er um 55 kílómetrar. „Ég hef hlaupið hann tvisvar,“ segir Ólafur Darri sem einnig á að baki nokkur maraþon. Hann segir að fjallgöngur og maraþon séu mjög góður undirbúningur fyrir Laugaveginn. Ólafur Darri er fjölskyldumaður, á konu, tvö börn og tvö tengdabörn og eitt barnabarn. Kona hans er Kristjana Bjarnadóttir og hún er forstöðumaður vefjaflokkunar í Blóðbankanum. Hún er menntaður líffræðingur.
Mest lesið Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira