Tvöfalt fleiri að kaupa fyrstu íbúð Sæunn Gísladóttir skrifar 3. febrúar 2016 11:19 Tvöfalt fleiri voru að kaupa fyrstu íbúð á árinu 2015, samanborið við árið 2008. Vísir/Getty
Tvöfalt fleiri voru að kaupa fyrstu íbúð á árinu 2015, samanborið við árið 2008. Á árinu 2008 voru fyrstu kaup innan við 10 prósent allra viðskipta með fasteignir á landinu öllu. Á árinu 2015 voru rúmlega 22 prósent allra viðskipta fyrstu kaup, eða um 2.600 íbúðir af um 11.700 íbúða veltu. Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans. Að meðaltali voru tæp 15 prósent allra viðskipta fyrstu kaup á síðustu 8 árum. Þróunin hefur að mestu verið upp á við frá árinu 2008, sérstaklega seinni hluta tímabilsins. Á árinu 2015 var þetta hlutfall hæst á Suðurnesjum og á Austurlandi, rúm 30 prósent. Lægst var hlutfallið á Norðurlandi eystra, tæp 19 prósent.Fyrirtæki enn fyrirferðamikilKaup fyrirtækja á íbúðum af einstaklingum jukust milli áranna 2010 og 2013 en hafa verið nokkuð stöðug seinustu tvö ár. Viðskipti af þessu tagi voru þó stærra hlutfall viðskipta á árinu 2015 en 2014 í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar þar sem ásókn fyrirtækja í íbúðir hefur verið einna mest. Kaup fyrirtækja á því svæði voru 11,4 prósentviðskipta 2015, 9,8 prósent 2014 og 11,7 prósent 2013. Á öllu höfuðborgarsvæðinu var sala einstaklinga til fyrirtækja 5,8% allra viðskipta á árinu 2015. Þarna er um um það bil 400 íbúðir að ræða. Ætla má að verulegur hluti þessara íbúða sé ætlaður til útleigu, annaðhvort til ferðamanna eða á innlendum leigumarkaði. Hækkandi hlutfall fyrstu kaupenda á íbúðamarkaði helst í hendur við mannfjöldaþróunina og aldurssamsetningu þjóðarinnar. Á tímabilinu 2000 til 2007 voru að meðaltali ríflega 46.300 landsmenn á aldursbilinu 25-35 ára, sem er algengur aldur þegar fólk kaupir sína fyrstu íbúð. Á tímabilinu 2008-2015 var meðalfjöldi fólks á þessu aldursbili ríflega 50.800 sem er um 10 prósent fjölgun milli tímabila. Tölur um fyrstu kaup eru einungis til frá árinu 2008 og því er samanburður við fyrri tímabil ekki til. Mat á því hvað er eðlilegt og hvað ekki er erfitt í þessu sambandi og fer eftir ýmsu, t.d. hvernig fyrstu kaup hafi verið á árunum á undan. Miðað við aldurssamsetningu þjóðarinnar má ætla að töluverð þörf hafi safnast upp á síðustu árum. Á árinu 2015 voru um 22 prósent allra viðskipta fyrstu kaup og á tveimur stöðum fór hlutfallið yfir 30 prósent. Miðað við stöðuna fyrir 8 árum hlýtur að mega ætla að hlutfall fyrstu kaupa af viðskiptum með fasteignir fari að nálgast eðlilegt ástand. Hér má lesa Hagsjánna í heild sinni.
Tengdar fréttir Hvernig á að kaupa sér íbúð? Fjölbreyttar leiðir eru í boði fyrir fólk til að kaupa sér íbúð. Fólk þarf að velja hversu hátt lán það vill taka, hvort það vill verðtryggt eða óverðtryggt lán og hversu lengi það vill skuldbinda sig láninu. 28. janúar 2016 07:00 Mest lesið Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Neytendur Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Neytendur Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi Atvinnulíf Jóhanna tekur við sem forstjóri Viðskipti innlent Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri Viðskipti innlent Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Viðskipti innlent „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Viðskipti innlent Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Neytendur Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Neytendur Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Sjá meira
Hvernig á að kaupa sér íbúð? Fjölbreyttar leiðir eru í boði fyrir fólk til að kaupa sér íbúð. Fólk þarf að velja hversu hátt lán það vill taka, hvort það vill verðtryggt eða óverðtryggt lán og hversu lengi það vill skuldbinda sig láninu. 28. janúar 2016 07:00