Eiginfjárstaða fjölskyldna batnaði árið 2015 Sæunn Gísladóttir skrifar 3. október 2016 10:25 Rúmur fimmtungur fjölskyldna voru skuldlaus í árslok 2015. Af skuldsettum fjölskyldum skuldaði helmingur 5,1 milljón króna eða minna og 90 prósent skuldsettra fjölskyldna skulduðu minna en 30,7 milljónir krón Vísir/Vilhelm
Eiginfjárstaða allra fjölskyldugerða batnaði árið 2015. Þetta sýna niðurstöður á eigna- og skuldastöðu einstaklinga samkvæmt skattframtölum sem Hagstofan birtir. Þetta á einkum við um einstæða foreldra en staða eiginfjár í þeim hópi jókst um 50 prósent árið 2015, að því er kemur fram í frétt Hagstofunnar. Eiginfjárstaða einstaklinga jókst um 17,1 prósent, hjóna án barna um 12,7 prósent og hjóna með börn um 27,5 prósent. Eiginfjárstaða milli ára hækkar mest í aldurshópunum 25-39 ára, úr 55 milljörðum króna í 111 milljarða króna árið 2015. Alls voru 153.084 fjölskyldur (76 prósent) með jákvæða eiginfjárstöðu í lok árs 2015 sem er 6,9 prósent aukning á milli ára. Fjölskyldur með neikvæða eiginfjárstöðu voru 45.529 (22 prósent) og hefur fækkað um 11 prósent frá fyrra ári. Fjöldi fjölskyldna með neikvætt eigið fé í húsnæði fækkar líkt og undanfarin ár. Árið 2015 voru 7.320 fjölskyldur með neikvæða eiginfjárstöðu í fasteign eða 57 prósent færri en árið 2014 og að meðaltali nam neikvæð eiginfjárstaða í fasteign 4,9 milljónum króna. Eignir einstaklinga jukust um 8,5 prósent milli ára eða úr 4.416 milljörðum króna í 4.792 milljarða króna. Skuldir einstaklinga námu 1.843 milljörðum króna í árslok 2015 og drógust saman um 2,9 prósent frá fyrra ári. Skuldir allra fjölskyldugerða drógust saman árið 2015. Skuldir hjóna með börn drógust saman um 3,5 prósent og einstæðra foreldra um 2,5 prósent og hjóna án barna um 3,8 prósent og einstaklinga um 1,2 prósent. Íbúðalán námu 1.215 milljörðum króna og drógust saman um 3,0 prósent milli ára. Íbúðalán allra fjölskyldugerða lækkuðu og allra aldurshópa að undanskildum hópunum yngri en 24 ára og 25-29 ára þar sem íbúðalán jukust um 15,4 prósent og 9,4 prósent frá fyrra ári. Rúmur fimmtungur fjölskyldna voru skuldlaus í árslok 2015. Af skuldsettum fjölskyldum skuldaði helmingur 5,1 milljón króna eða minna og 90 prósent skuldsettra fjölskyldna skulduðu minna en 30,7 milljónir króna. Samanlagðar skuldir allra, að frátalinni hæstu skuldatíundinni, voru 1,1 milljarður króna eða 60,6 prósent heildarskulda. Samanlagðar skuldir fjölskyldna sem eru í hæstu skuldatíundinni, námu 726 milljörðum króna og voru rúm 39 prósent af heildarskuldum. Þessar fjölskyldur voru einkum hjón með börn (56 prósent) og hjón með engin börn á framfærslu (24 prósent).
Mest lesið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Neytendur Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Neytendur „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Viðskipti innlent Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Viðskipti innlent „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Atvinnulíf Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Viðskipti innlent Ungir fatasalar möluðu gull Viðskipti innlent Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Sjá meira