Myglumál í húsnæði hjúkrunarfræðinema Bjarki Ármannsson skrifar 10. febrúar 2016 20:15 Til stendur að framkvæma frekari mælingar varðandi mögulega myglu í Eirbergi við Eiríksgötu. Vísir/Loftmyndir.is
Til stendur að framkvæma frekari mælingar varðandi mögulega myglu í Eirbergi, húsnæði hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands við Eiríksgötu. Umtalsverð mygla greindist á tveimur stöðum í húsinu við sýnatöku í október síðastliðnum. Greint er frá myglumálum í Eirbergi í tölvupósti sem deildarstjóri hjúkrunarfræðideildar sendi nemendum í síðustu viku. Tölvupósturinn var sendur vegna greinarinnar „SOS – Við erum að kafna úr myglu!“ sem birtist á Vísi í aðdraganda kosninga í Stúdentaráð Háskóla Íslands. Þar kemur fram að myglusveppur hafi fundist í húsinu. „Nemendur eru hættir að nýta sér lesaðstöðuna og farnir að mæta sjaldnar í tíma sökum þessa,“ skrifar Inga María Árnadóttir, varamaður í sviðsráði Heilbrigðisvísindasviðs, í greininni. „Margir kvarta undan síþreytu, einbeitingarleysi og stöðugum veikindum. Eins neitaði einn kennari að kenna framar í þessu húsnæði og því hafa sumir nemendur verið á vergangi.“„Óútskýrð einkenni“ herjuðu á starfsfólk spítalans Samkvæmt heimildum Vísis braust út talsverð óánægja meðal hjúkrunarfræðinema eftir að greinin birtist. Voru nemendur margir hverjir ósáttir við að hafa ekki verið látnir vita af því að mygla hefði greinst í Eirbergi. Í tölvupóstinum til nemenda, sem Vísir hefur undir höndum, kemur fram að Landspítalinn hafi látið meta ástandið í vistarverum spítalans í húsinu árið 2014 vegna „óútskýrðra einkenna“ sem höfðu þá herjað á suma starfsmenn spítalans. Greindist þá mygla í vistarverunum, sums staðar mikil, og var ráðist í framkvæmdir síðasta vor til þess að komast fyrir leka sem gæti valdið ástandinu. Eins og fyrr segir, var það svo í október sem sýnataka var framkvæmd á átján stöðum í Eirbergi þar sem starfsemi hjúkrunarfræðideildar fer fram. Í tölvupóstinum frá deildarstjóra segir að niðurstöður loftsýna hafi á heildina litið verið taldar góðar en á einum stað í kjallara hafi þótt þörf á aðgerðum. Umtalsverð mygla greindist á tveimur stöðum, undir glugga í stofunni C-201 og í hitakompunni A-003. Þá greindist nokkur mygla í gólfdúk við svalahurð í rými A-106. „Í síðasta mánuði var settur saman vinnuhópur þar sem í eru þrír fulltrúar hjúkrunarfræðideildar, fulltrúar nemenda og aðilar frá framkvæmda- og tæknisviði Háskóla Íslands sem ætlað er að vinna að úrbótum í húsnæði deildarinnar er varðar aðbúnað í kennslustofum, lesrýmum og fleiru,“ segir í póstinum. „Vinnuhópurinn hefur þegar óskað eftir að framkvæmdar verði frekari mælingar varðandi mögulega myglu, ásamt því að loftgæði almennt í húsinu verði skoðuð, svo sem rakastig og súrefnisinnihald. Myglumál í Eirbergi eru því enn til skoðunar.“
Tengdar fréttir SOS - Við erum að kafna úr myglu! 2. febrúar 2016 14:37 Myglusveppur herjar á starfsmenn BUGL Líkur eru á að færa þurfi starfsemi BUGL í annað húsnæði vegna gruns um myglusvepp. Sveppur fannst í eldri byggingu deildarinnar í sumar, og nú í þeirri nýju. 11. nóvember 2015 14:37 Tíu til fimmtán starfsmenn BUGL hafa veikst af myglusvepp Myglusveppur greindist í húsnæði göngudeildar BUGL við Dalbraut í byrjun síðasta árs og hafa framkvæmdir staðið yfir án þess að náðst hafi að koma í veg fyrir vandann. Í síðustu viku var starfsmönnum sent bréf þar sem tilkynnt var að takmarka þyrfti starfsemi göngudeildarinnar eftir að fleiri starfsmenn veiktust. 4. febrúar 2016 07:00 Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
Myglusveppur herjar á starfsmenn BUGL Líkur eru á að færa þurfi starfsemi BUGL í annað húsnæði vegna gruns um myglusvepp. Sveppur fannst í eldri byggingu deildarinnar í sumar, og nú í þeirri nýju. 11. nóvember 2015 14:37
Tíu til fimmtán starfsmenn BUGL hafa veikst af myglusvepp Myglusveppur greindist í húsnæði göngudeildar BUGL við Dalbraut í byrjun síðasta árs og hafa framkvæmdir staðið yfir án þess að náðst hafi að koma í veg fyrir vandann. Í síðustu viku var starfsmönnum sent bréf þar sem tilkynnt var að takmarka þyrfti starfsemi göngudeildarinnar eftir að fleiri starfsmenn veiktust. 4. febrúar 2016 07:00