Innlent

Sérsveitarmenn í Leifsstöð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík. Vísir/Valli
Eftirlit á Keflavíkurflugvelli var aukið strax í morgun eftir hryðujuverkin í Brussel í Belgíu. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að löggæsla hafi verið hert en aðstoðar var leitað hjá sérsveit ríkislögreglustjóra.

Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að tveir aukamenn hafi verið sendir á vettvang strax í morgun til að halda uppi löggæslu. Í kjölfarið voru vopnaðir lögreglumenn og sérsveitarmenn sendir á vettvang. Verða hinir síðarnefndu hinum fyrrnefndu til aðstoðar.

Vástigsnefnd ríkislögreglustjóra fundaði klukkan tíu í morgun vegna flugverndar en á fundinum voru fulltrúar frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum, ríkislögreglustjóra og flugmálayfirvöldum. Ákvað nefndin að hækka ekki vástig vegna flugverndar.

Uppfært klukkan 16

Lögeglustjórinn á Suðurnesjum hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu til fjölmiðla:

„Í ljósi alvarlegra atburða á alþjóðaflugvellinum og víðar í Brüssel í morgun, svo og hryðjuverka víðar í álfunni undanfarin misseri, hefur lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákveðið að auka viðbúnað lögreglu í og við Flugstöð Leifs Eiríkssonar, með sérstakri aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra. Þessi ákvörðun lögreglustjóra er tekin í samráði við ríkislögreglustjóra.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×