Segir aðför LÍN ekki samræmast stefnu Framsóknarflokksins Stefán Ó. Jónsson skrifar 30. apríl 2016 11:04 LÍN er með aðsetur í Borgartúni. Vísir/valgarður
Samband ungra Framsóknarmanna harmar aðför „Lánasjóðs íslenskra námsmanna að íslenskum námsmönnum erlendis,“ eins og það er orðað í ályktun frá sambandinu. Þar segist sambandið að þrengt hafi verið að möguleikum íslenskra ungmenna til háskólanáms erlendis með markvissum hætti á grundvelli óvandaðra vinnubragða. „Framganga stjórnar LÍN á þessu kjörtímabili gagnvart námsmönnum erlendis með samþykki menntamálaráðherra samræmist ekki stefnu Framsóknarflokksins,“ segir sambandið. Stjórn SUF skorar á ríkisstjórn Sigurðar Inga, og þingmenn allra flokka að láta sig þessi mál varða og samþykkja ekki jafn slíkar kerfisbreytingar. „Um gildi þess að gera sem flestum þjóðfélagshópum kleift að sækja sér menntun erlendis þarf ekki að rökræða,“ stendur í ályktuninni. Samkvæmt samþykktri stefnu Framsóknarflokksins þá telur hann „mikilvægt fyrir samfélagið að ný þekking og hugmyndastraumar í greinum háskólastigsins berist jafnt og þétt til landsins.“ „Að því marki ályktaði Framsóknarflokkurinn, að mikilvægt væri „að íslenska háskólasamfélagið hvetji nemendur til framhaldsnáms á háskólastigi erlendis,“ eins og þar stendur. „Stjórn SUF tekur að fullu undir og styður málfluttning Sambands íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE). Stjórn SUF vísar jafnframt á bug þeim röksemdum LÍN um að jafna beri stöðu innlendra og erlendra námsmanna, enda getur falist gróf mismunun í því að jafna stöðu þeirra í krónum talið sem búa við gerólíkar aðstæður. Nægir þar að nefna stuðningskerfi og möguleika til aukatekna sem innlendir námsmenn eiga að jafnaði góðan aðgang að, ólíkt námsmönnum á fjarlægum slóðum í framandi menningu.“
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira