Lifði af fyrsta daginn sem forsætisráðherra Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 9. apríl 2016 07:00 Sigurður Ingi Jóhannsson settist í fyrsta sinn innst á ráðherrabekkinn í gærmorgun, á stól forsætisráðherra. Fréttablaðið/Anton Brink
Sigurður Ingi Jóhannsson þraukaði inn í sinn annan dag í embætti forsætisráðherra Íslands en báðar tillögur stjórnarandstöðunnar um vantraust og þingrof voru felldar á Alþingi í gær. Vantrauststillögur hafa verið bornar upp nokkrum sinnum á lýðveldisstímanum en í gær var sögulegur dagur þar sem vantrauststillaga var í fyrsta sinn borin upp á ríkisstjórn sem hafði setið í einungis einn dag.Í raun var Sigurður Ingi nokkuð öruggur í embættinu þó að umrótið í stjórnmálunum sé mikið þessa dagana og ákall um kosningar hávært. Vantrauststillaga á hendur ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar var felld með 38 atkvæðum gegn 25 en allir þingmenn stjórnarflokkanna kusu gegn henni.Unnur Brá er vafalaust hetja gærdagsins í hugum stjórnarandstæðinga.vísir/vilhelmSteig upp úr skotgröfinni Tillaga um þingrof féll með 37 atkvæðum gegn 26. Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kaus með tillögu um þingrof. „Ég tel að Sjálfstæðisflokkurinn sem og þjóðin öll hafi hag af því að fara í kosningar,“ sagði Unnur Brá. Það væri hollt fyrir lýðræðið og þjóðfélagið í heild. „Þegar verða mikil átök í pólitíkinni eins og hafa orðið nú vegna þessara atburða sem orðið hafa í vikunni, líka vegna þess sem gerðist þegar þjóðin felldi Icesave-lögin á sínum tíma, þá á þingið að skoða hug sinn og sjá hvort það sé ekki rétt að kjósa. Við erum ekki hrædd við kosningar. Þess vegna styð ég það að við förum í kosningar og segi já,“ sagði Unnur Brá og uppskar lófatak stjórnarandstæðinga. Margi spáðu að Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, myndi venda kvæði sínu í kross en svo varð ekki, hún kaus bæði gegn vantrausti og þingrofi. Fólk vísaði í stuðning hennar við tillögu þáverandi forsætisráðherra um þingrof en hún féllst á samkomulag um nýja ríkisstjórn og haustkosningar. „Hér er fulltrúalýðræði í þinginu og í Framsóknarflokknum, enda sagði ég í kjölfarið að ég myndi ekki standa að tillögu stjórnarandstöðunnar um þingrof enda finnst mér hún ekki tæk stjórnskipulega séð,“ sagði Vigdís.Þingmenn stjórnarandstöðunnar voru síður en svo sáttir við afstöðu stjórnarþingmanna og margir gáfu lítið fyrir loforð um kosningar í haust. „Hér virðast þingmenn úr stjórnarmeirihlutanum ætla að fella tillögu um kosningar þrátt fyrir að maður heyrir úr herbúðum þeirra að þeir séu fylgjandi því og óhræddir við þær,“ sagði Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. „Ég spyr: Hvers vegna eru menn ekki búnir að gefa út dagsetningu um kosningar í haust? Þetta þarf að skýra. Önnur af breytingunum sem menn lofuðu hér voru kosningar fyrr. Hvað eru menn hræddir við? Kjósendur?“Nýr burðarflokkur vinstra megin? Þá gerði Maskína könnun sem leiddi í ljós að 50,7 prósent aðspurðra vilja alþingiskosningar í vor. 25,6 prósent vilja kosningar í haust en 23,3 prósent vorið 2017. Mikill munur var á afstöðu stuðningsmanna stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar en þeir fyrrnefndu vildu heldur halda kosningar seinna.Vinstri Græn virðast í forgrunni hjá íslenskum vinstrimönnum um þessar mundir á meðan að Samfylkingin er ekki í fókus hjá almenningi.Fréttablaðið/Vilhelm80 prósent landsmanna vilja að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segi af sér þingmennsku ef marka má skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. 64 prósent vilja að Bjarni Benediktsson segi af sér sem ráðherra og 60 prósent að Ólöf Nordal innanríkisráðherra geri það einnig.Tvær fylgiskannanir komu út í gær. Ef marka má þær kannanir, sér í lagi könnun Maskínu, er nokkuð um vendingar í Íslenskum stjórnmálum. Vinstri Græn virðast nærast vel þegar samfélagsumræðan snýr að fyrirbærum eins og skattaskjólum og skattaundanskotum en í könnun Maskínu hafa Vinstri Græn tekið hástökk upp í 20 prósent fylgi og eru nærri jafn stór Sjálfstæðisflokknum sem mælist með 21,3 prósent fylgi. Í könnun Félagsvísindastofnunar mælast Píratar enn með mest fylgi, eða 30,9 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 23,3 prósent og Vinstri græn með 14,7 prósent. Framsóknarflokkurinn mælist með 12,9 prósent. Samfylkingin með 9,5 prósent og Björt framtíð með 4,8. Aðrir flokkar eru með 3,9 prósent. Í könnun Maskínu eru Píratar eru stærstir með 34,2. Framsókn mælist með 9,4 prósent, Samfylkingin með 7,2 prósent og Björt framtíð með 5,2. Þá kemst Viðreisn á blað með 1,2 prósent en aðrir flokkar fá 1,5 prósent. Könnun Maskínu var gerð í gær og voru gildir svarendur 2.239 eða 91,8 prósent. Könnun Félagsvísindastofnunar var gerð 7. og 8. apríl og svarendur voru 826 talsins.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 9. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna Sjá meira