Innlent

Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Veginum hefur verið lokað.
Veginum hefur verið lokað. vísir/nanna
Vesturlandsvegur er lokaður á stuttum kafla eftir að fólksbíll og jeppi skullu saman skammt frá Tungufossi. Umferð er beint í aðrar áttir eftir því sem unnt er.

Lögregla og sjúkaflutningamenn eru á slysstað. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningum var einn í hvorum bíl en verið er að beita klippum til að ná öðrum þeirra úr bílnum. Ekki er vitað um líðan þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×