Ferðamannagjaldeyrir fer í 100 milljónir eftir komandi áramót Hafliði Helgason skrifar 21. desember 2016 11:00 Íslendingar geta eftir áramótin höndlað með allt að 100 milljónir króna í erlendum gjaldeyri, án þess að sækja um leyfi til Seðlabankans.
Annað skref í afnámi gjaldeyrishafta tekur gildi um áramót. Í fyrsta skrefi afnáms gjaldeyrishafta sem tók gildi við samþykkt nýrra laga fengust heimildir til að kaupa erlendan gjaldeyri fyrir allt að 30 milljónir króna. Nú um áramótin verður þessi heimild aukin í 100 milljónir króna. Gildir þetta jafnt um heimild til að millifæra á eigin gjaldeyrisreikninga hjá innlendum og erlendum bönkum. Aðrar breytingar um áramót eru þær að ekki þarf að framvísa farseðli vegna ferðagjaldeyris. Þá falla niður skilyrði um innlenda vörslu erlendra verðbréfafjárfestinga. Að margra mati hafa skapast skilyrði til að stíga þau skref að losa að mestu leyti um öll gjaldeyrishöft, en ekkert liggur enn fyrir í þeim efnum. Í greinargerð Seðlabankans um losun fjármagnshafta kemur fram að mikilvægt sé að losun fjármagnshafta sé skipulögð þannig að komið verði í veg fyrir óhóflegt álag á lausafjárstöðu fjármálafyrirtækja og greiðslujöfnuð. „Fjárhæðarmörk á innstæðuflutninga og erlendar fjárfestingar þurfa því að taka mið af líklegu álagi á greiðslujöfnuð og greiningu á mögulegum áhrifum á lausafjárstöðu fjármálafyrirtækja. Innstæðuflutningur felur í sér að innlend fjármálafyrirtæki tapa fjármögnun og þurfa því að ganga á lausar eignir eða verða sér úti um aðra fjármögnun. Því er ráðlegt að hækka fjárhæðarmörkin í skrefum,“ segir í greinargerð Seðlabankans.
Mest lesið Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Bestu íslensku auglýsingar ársins 2013 Viðskipti innlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play Sjá meira