Stefán Hrafn nýr deildarstjóri samskiptadeildar Landspítala Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 30. nóvember 2016 10:11 Stefán Hrafn Hagalín. Vísir
Stefán Hrafn Hagalín er nýr deildarstjóri samskiptadeildar Landspítala. Hann tekur við starfinu af Guðnýju Helgu Herbertsdóttur 1. desember. Stefán Hrafn er verkefnastjóri hjá Auðkenni í dag en hefur undanfarin þrjú ár verið deildarstjóri markaðsmála og mannauðs hjá Odda. Þar áður stýrði hann markaðsmálum og almannatengslum í upplýsingatækni um fimmtán ára skeið, nánar tiltekið hjá Advania, Skýrr, Opnum kerfum og Teymi, Oracle á Íslandi. Stefán Hrafn starfaði þar áður við fjölmiðla í liðlega áratug, meðal annars sem ritstjóri Helgarpóstsins og Tölvuheims, fréttastjóri Alþýðublaðsins og þáttastjórnandi hjá Bylgjunni og Stöð 2. Hann er giftur Valgerði Gunnarsdóttur, grafískum hönnuði hjá Pipar/TBWA. Þau eiga fimm börn á aldrinum 17-27 ára. „Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5.000 manns starfa í þverfaglegum teymum fjölmargra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er ekki bara að vera háskólasjúkrahús í hæsta gæðaflokki, heldur að vera vinnustaður í fremstu röð. Mannauðurinn hjá spítalanum er ótrúlegur, stjórnendateymið metnaðarfullt og krafturinn í starfseminni einstakur. Það er spennandi viðfangsefni að axla þetta starf hjá þjóðarsjúkrahúsinu,“ er haft eftir Stefáni Hrafni í tilkynningu frá Landspítalanum. Hlutverk samskiptadeildar Landspítala er að móta og innleiða stefnu um innri og ytri samskipti og skipuleggja virka upplýsingamiðlun um stefnu og starfsemi spítalans. Í verkahring deildarinnar eru meðal annars framleiðsla kynningarefnis, margvísleg útgáfa, samfélagsmiðlar og vefmál. Samskiptadeild sér einnig um almannatengsl og samskipti við fjölmiðla, ásamt því að hafa umsjón með stærri viðburðum.
Mest lesið Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Sjá meira