Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni frá Brussel

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað ítarlega um eftirleik hryðjuverkaárásanna í Brussel. Una Sighvatsdóttir, fréttakona Stöðvar, er stödd í borginni og mun flytja fréttir þaðan næstu daga.

Í kvöldfréttum verður einnig fjallað um sýknu Annþórs og Barkar og rætt við verjendur þeirra og aðstandendur. Þá kynnum við okkur stöðuna á framkvæmdum við Hlíðarenda en þar hafa opinberir aðilar og einkaaðilar fjárfest fyrir hundruð milljóna og fjarlægt hluta af neyðarbrautinni svokölluðu sem ríkinu hefur nú verið gert að loka ellega sæta dagsektum.

Þetta og margt fleira í kvöldfréttum Stöðvar 2, klukkan 18:30, í opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi.

Sjá má fréttatímanum í beinni spilaranum að ofan.

Una Sighvatsdóttir fréttamaður og Björn G. Sigurðsson tökumaður eru í Brussel og munu fjalla þaðan um eftirmála hryðjuverkanna í fréttum Stöðvar2 í kvöld. Íbúar Brussel buðu óttanum byrginn í miðborginni í dag eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.

Posted by Kvöldfréttir Stöðvar 2 on Wednesday, 23 March 2016



Fleiri fréttir

Sjá meira


×