Tærnar upp í loft eftir sextán rjúpur fyrsta daginn Anton Egilsson skrifar 29. október 2016 15:55 Uppskera Halldórs Svavars Sigurðssonar á fyrsta degi rjúpnaveiðitímabilsins. Mynd/Halldór Svavar
Eflaust hlakkar í mörgum veiðimanninum nú þegar rjúpnaveiðitímabilið er formlega hafið. Fjöldi veiðidaga eru tólf talsins og skiptast þeir á fjórar helgar, þ.e. síðustu helgina í október og fyrstu þrjár í nóvember. Mikill fjöldi veiðimanna gengur til rjúpna ár hvert og flestir í þeirri von að veiða í jólamatinn. Í óformlegri könnun sem gerð var inn á Facebook hópnum „Skotveiðispjallið“ hefur veiðin gengið misvel hjá mönnum eftir fyrsta veiðidag en á meðan einhverjir segjast hafa veitt yfir tíu rjúpur eru aðrir enn tómhentir.Halldór Svavar Sigurðsson.Kláraði sinn skammt og segir þetta gottFréttastofa náði tali af Halldóri Svavari Sigurðssyni en hann er staddur við rjúpnaveiðar á norðausturhorninu, fyrir utan Kópasker í Öxarfjarðarhreppi. Töluverður fjöldi veiðimanna er á svæðinu að sögn Halldórs. Af því sem hann hefur heyrt þá hefur lítið verið veitt bæði í gær og það sem af er deginum í dag. Sjálfum hefur honum þó gengið afbragðsvel en hann landaði heilum sextán rjúpum í gær og þar nemur hann staðar við. „Ég kláraði bara minn skammt í gær. Ég veiði einungis fyrir mig og mína og það eru sextán rjúpur svo nú þegar ég er búinn að ná því þá stoppa ég. Ætli ég hafi ekki bara verið heppinn í gær með það svæði sem ég var á.“ Aðspurður um hvernig hann ætlar að eyða restinni af helginni segist hann ætla njóta sveitarinnar í rólegheitum í staðinn fyrir að vera upp í fjalli.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira