Femínistinn Theresa May: Reynslubolti sem rekur harða innflytjendastefnu Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 12. júlí 2016 13:45 Theresa May í dag, 12. júlí, á leið á síðasta fund sinn sem innanríkisráðherra í ríkisstjórn Davids Cameron. Takið eftir hlébarðaskónum en May er þekkt fyrir tískuvit sitt og áhuga. Vísir/EPA
Theresa May er næsti forsætisráðherra Bretlands en í gær var staðfest að hún yrði leiðtogi Íhaldsflokksins sem hefur öruggan meirihluta á breska þinginu. David Cameron segir af sér á miðvikudag og tekur May við stjórnartaumunum um leið.Hver er þessi kona sem verður aðeins önnur konan til þess að gegna embætti forsætisráðherra landsins á eftir Margaret Thatcher?Theresa og Philip í gala-veislu sumarið 2013. Verðandi forsætisráðherrann hefur sagt hjónabandið afar farsælt þrátt fyrir að erfitt hafi verið að horfast í augu við að þau gætu ekki átt börn.Vísir/GettyMay er fædd árið 1956 í Bretlandi. Hún er einbirni og með gráðu í landafræði frá Oxford háskóla. Í háskólanámi kynntist hún eiginmanni sínum Philip May en samkvæmt breskum miðlum kynnti Benazir Bhutto, fyrrum forsætisráðherra Pakistan, parið á dansleik. May hefur talað af einlægni um barnsleysi þeirra hjóna en þau gátu ekki eignast börn. Theresa May var fyrst kjörin á þing árið 1997, hún var formaður Íhaldsflokksins á árunum 2002 til 2003 og hefur verið innanríkisráðherra síðan 2010, bæði í fyrri ríkisstjórn Davids Cameron og þeirri síðari. Þá var hún ráðherra kven- og jafnréttismála á árunum 2010 til 2012. Formaður Íhaldsflokksins sinnir innra starfi flokksins en leiðtogi sinnir pólitísku starfi fyrir flokkinn út á við. Á næstu dögum verður May að ákveða hverjum hún raðar í kringum sig og hvernig hún hyggst skipa ríkisstjórn sína. Hún hefur hafnað því að boða til þingkosninga að nýju og vísar til sterks umboðs Íhaldsflokksins úr síðustu kosningum.En hver er afstaða May til hinna ýmsu samfélagsmála?May studdi ekki Brexit en hún telst þrátt fyrir það ekki til hóps beinna Evrópusinna.Vísir/GettyBrexit og Evrópusamstarf Eins og kunnugt er sagði Cameron af sér eftir niðurstöður þjóðaratkvæðisgreiðslu um veru Breta í Evrópusambandinu en Cameron var ötull stuðningsmaður þess að Bretland segði sig ekki frá sambandinu. Niðurstaðan varð ekki sú og verður Bretland því fyrsta þjóðin sem segir sig úr ESB. „Brexit þýðir Brexit,“ sagði Theresa May sem sjálf var hlynnt því að Bretland yrði áfram hluti af Evrópusambandinu þrátt fyrir að hún geti seint talist mikill Evrópusinni. „Það verða engar tilraunir gerðar til þess að halda áfram að vera hluti af Evrópusambandinu, við verðum ekki aftur hluti af sambandinu í gegnum bakdyr og við blásum ekki til annarrar þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðin kaus með því að yfirgefa Evrópusambandið og sem forsætisráðherra mun ég ganga úr skugga um að við yfirgefum sambandið,“ sagði May. Hún hefur sagst stefna að því að ná bestu mögulegu samningum fyrir Bretland við útgönguna en hún hyggst ekki virkja 50. grein sáttmálans, sem kveður á um útgöngu ríkis, fyrr en á næsta ári.Mikill fjöldi innflytjenda býr í Bretlandi og mikil óvissa er um réttindi þeirra nú eftir Brexit, bæði þeirra sem koma frá öðrum Evrópulöndum og frá löndum utan Evrópu.Vísir/GettyHún hefur mælt fyrir harðri innflytjendastefnu en hún segir að innviðir landsins verði að vera búnir undir að taka á móti innflytjendum. Hún er alfarið á því að Bretland eigi sjálft að stýra sínum innflytjendamálum og vill minnka fjölda innflytjenda. Ein af hennar umdeildustu gjörðum í embætti var regla sem gerir breskum borgara það óheimilt að flytja maka sinn eða börn til landsins nema hann afli meira en 2,8 milljóna á ári og skiptir þá engu hverjar tekur makans eru. Frjálst flæði af vörum og þjónustu er lykilatriði fyrir May sem mun leggja ríka áherslu á að ná sem bestum samningum hvað þann þátt fjórfrelsisins varðar. Stærsta verkefni May verður að sameina Íhaldsflokkinn og bresku þjóðina eftir Brexit þjóðaratkvæðagreiðsluna en það má með sanni segja að kosningabaráttan hafi skipt þjóðinni í tvær fylkingar.Velferðar- og mannréttindamál „Í fyrsta lagi þurfum við á sterkri leiðtogastjórn að halda til þess að leiðbeina okkur í gegnum þá erfiðu óvissutíma sem framundan eru í pólítíkinni og efnahagslífinu, það þarf, auðvitað, að komast að bestu niðurstöðunni fyrir Bretland þegar kemur að útgöngu úr Evrópusambandinu og að skapa nýtt hlutverk fyrir landið í heiminum. Í öðru lagi ætlum við að sameina þjóðina og í þriðja lagi þurfum við skýra, nýja, jákvæða framtíðarsýn fyrir landið, sýn fyrir landið sem tryggir að það sé ekki aðeins fyrir nokkra velvalda forréttindapésa heldur sýn sem virkar fyrir alla þjóðfélagsþegna.“ Þetta sagði May í gær þegar hún tók við hlutverki leiðtoga Íhaldsflokksins.Frá gleðigöngu samkynhneigðra í London.Vísir/GettyMay sagði áður í kosningabaráttunni að ríkisstjórnin yrði að fara fyrir félagslegum umbótum í ríkara mæli. „Því að núna er staðan sú að ef þú fæðist fátækur þá deyrðu að meðaltali níu árum fyrr en aðrir. Ef þú ert fæðist svartur færðu harkalegri meðferð dómskerfisins en ef þú hefðir fæðst hvítur.“ Þá hefur hún talað um launamun kynjanna og barist fyrir betri kjörum fyrir foreldra í fæðingarorlofi. Þrátt fyrir þetta hefur hún stutt niðurskurð til velferðarmála og hefur almennt kosið gegn því að ríkið verji fjármunum í að skapa störf fyrir ungt fólk sem hefur lengi verið atvinnulaust. Hún kaus upphaflega gegn því að afnema lög sem bönnuðu hjónabönd samkynhneigðra en árið 2013 hafa skoðanir hennar greinilega þróast því þá kaus hún með því að heimila hjónabönd samkynhneigðra og sagði: „Ef tveimur einstaklingum þykir vænt hvorum um annan, ef tveir einstaklingar eru ástfangnir, þá ættu þeir að geta gengið í hjónaband.“May fylgir í fótspor Thatcher sem hefur hingað til verið eini kvenkyns forsætisráðherrann í sögunni. Hún lést árið 2013 og var ævisagan hennar gefin út í kjölfarið.Vísir/EPAMay kaus með því að afnema lög frá 1998 sem innleiða Mannréttindasáttmála Evrópu auk þess sem hún kaus gegn löggjöf sem óheimilar mismunun byggða á kynþætti.Stríðsrekstur Hún studdi stríðið í Írak og einnig stríðin í Afganistan og Sýrlandi.Feminismi og jafnrétti Þrátt fyrir að May sé önnur konan til þess að gegna embætti forsætisráðherra er hún fyrsti forsætisráðherra Bretlands sem opinberlega skilgreinir sjálfa sig sem feminista. David Cameron var gagnrýndur fyrir að tala í kringum orðið og forðast að kalla sjálfan sig feminista fullum fetum. May kom fram í viðtali árið 2012 hjá tímaritinu Total Politics þar sem hún lýsti skoðunum sínum um feminisma og jafnrétti.Theresa May er þekkt fyrir mikinn áhuga á tísku og þykir einstaklega smekkleg.Vísir/EPA„Þetta er þessi aldagamla umræða, sumum líkar ekki hugtakið „feministi“ því þeim finnst það lýsa ákveðinni gerð af konu. Fyrir mér snýst þetta um að tryggja að það sé jafn leikvöllur fyrir alla og jöfn tækifæri,“ sagði May í viðtalinu. Hún sagðist finna aukna pressu sem hæst setta konan í sinni ríkisstjórn á að standa sig vel. „Það er enn meiri ástæða fyrir mig að standa mig vel, til þess að sýna að kona í minni stöðu getur vel unnið vinnuna sína,“ sagði hún. Hún stofnaði Women2Win, samtök sem vinna að því að fjölga kvenkyns þingmönnum.Tískugoðið Theresa May May hefur fundið það á eigin skinni hvernig það er að vera kona í pólitík en allt varð vitlaust í mars á þessu ári vegna þess að kjóllinn sem May kom í til þingstarfa var talinn ansi fleginn. Breskir samfélagsmiðlanotendur skiptust í fylkingar, annars vegar þeir sem gagnrýndu klæðnað þáverandi innanríkisráðherra og þótti hann ósmekklegur og hins vegar þeir sem hneyksluðust á umræðunni og yfir því að kvenbrjóst gætu skapað svo mikið fár. Hér má sjá myndina sem skapaði umræðu yfir brjóstaskoru innanríkisráðherrans, umræða sem tengist nákvæmlega ekkert störfum innanríkisráðherrans eða afstöðu hennar til samfélagsmála en það gagnrýndu margir.VísirÞá hefur May fengið mikla athygli fyrir fataval sitt en hún er sett í hóp breskra tískugoða og hefur sagst leggja mikið upp úr því að líta vel út. „Ég er kona og ég er hrifin af fötum. Ég er hrifin af skóm og fötum. Ég held að ein áskorunin fyrir konur í pólítík og atvinnulífi sé að fá að vera þær sjálfar. Veistu hvað, það er hægt að vera klár og vera hrifin af fötum. Það er hægt að vera með flottan starfsferil og hafa gaman af fötum,“ sagði hún á ráðstefnunni Women of the World í London síðasta haust. Hún hefur sérstaklega vakið athygli fyrir skemmtilega og litríka skó. May tekur við forsætisráðuneytinu á morgun og það verður áhugavert að fylgjast með þessum reynslubolta í breskri pólitík taka við stjórn Bretlands á þessum umrótatímum. Hér að neðan má sjá myndband sem Guardian gerði um May.
Brexit Tengdar fréttir May verður forsætisráðherra á miðvikudag Theresa May mun taka við sem forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Íhaldsflokksins á miðvikudagskvöld. Þetta tilkynnti David Cameron fráfarandi forsætisráðherra í dag. 11. júlí 2016 15:34 Theresa May tekur við af Cameron 12. júlí 2016 08:00 Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Fara fram á farbann Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Innlent Fleiri fréttir Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Sjá meira
May verður forsætisráðherra á miðvikudag Theresa May mun taka við sem forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Íhaldsflokksins á miðvikudagskvöld. Þetta tilkynnti David Cameron fráfarandi forsætisráðherra í dag. 11. júlí 2016 15:34