Alþjóðlegur leiðangur rannsakar stærð hrygningarstofns makríls Svavar Hávarðsson skrifar 11. maí 2016 07:00 Makríleggjum verður safnað með nýjum háhraða svifháfi, svokölluðum Gulf VII eða "tundurskeytinu“. Mynd/Björn Gunnarsson
Hafrannsóknastofnun tekur þátt í fjölþjóðlegum leiðangri þar sem markmiðið er að áætla stærð hrygningarstofns makríls í Norðaustur-Atlantshafi. Leiðangurinn er skipulagður af Alþjóðahafrannsóknaráðinu (ICES), og lét hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson úr höfn í byrjun maí til rannsóknarstarfa. Mælingarnar eru mikilvægur hluti af stofnstærðarmælingu og þar með mati á veiðiþoli makrílstofnsins. Við stofnmatið er beitt svokallaðri eggjaframleiðsluaðferð en hún byggir á að meta fjölda eggja á hrygningarsvæði makrílsins. Hrygning makríls hefst við strendur Portúgals í febrúar og teygir sig allt norður í íslensku landhelgina og lýkur í byrjun ágúst. Sýnatakan er þar af leiðandi gríðarlega umfangsmikil en alls koma að henni tíu Evrópulönd (Portúgal, Spánn, Írland, Bretland, Holland, Danmörk, Þýskaland, Noregur, Færeyjar og Ísland) og ellefu rannsóknastofnanir og er hún framkvæmd þriðja hvert ár. Á vegum þessara stofnana eru farnir tuttugu rannsóknaleiðangrar frá því í febrúar og fram í ágúst. Hafrannsóknastofnun tekur nú þátt í verkefninu í þriðja sinn og verður rs. Bjarni Sæmundsson við rannsóknir í tvær vikur á hafsvæðinu milli Skotlands og Færeyja. Bráðabirgðaniðurstöður verkefnisins munu liggja fyrir í haust.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 11. maí.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira